Loksins gott kaffi í vinnunni
Það hefur verið alveg bilað að gera í vinnunni, svo ekki sé meira sagt. Það er langt síðan ég hef verið svona upptekinn í vinnunni, en þetta hefur bara verið mjög gaman og spennandi svo ekki hægt að kvarta undan því. Bestu fréttirnar úr vinnunni eru samt að Kaffitár opnaði hjá okkur. Já, það er meira að segja orðið styttra fyrir mig að fara á Kaffitár en að fara upp á kaffistofuna! Held það gerist ekki betra (nema reyndar fyrir buddu greyið, veit ekki alveg hvernig henni reiðir af við svona lagað).

En svona talandi um kaffi, Ragga (er þarna í miðjunni á myndinni) sendi mér link um daginn, mæli með þessu fyrir kaffiáhugafólk, Sex and coffee.








