Tvær í einu!
Já er það ekki það sem hvern karlmann dreymir um, að vera með tveimur konum í einu, bara trekant, samloka og hvaða önnur nöfn eru notuð yfir svona lagað! Ég fékk að prófa það áðan, er ekki að skrökva! Sigrún meira að segja horfði á…
OK, OK, OK, það var ekki svooooollllleeeiiiiððððððiiiissss samloka heldur voru þetta tvær konur að klippa mig í einu. Ég skrapp í klippingu sem er nú ekki frásögu færandi, nema að sú sem klippir mig venjulega var upptekin að klippa Sigrúnu svo það var önnur sem klippti mig. Þær voru svo eitthvað að spá í hvernig þetta ætti að vera og þegar hún var búin að klippa Sigrúnu þá voru þær tvær, sitt hvoru megin, að klippa hausinn á mér. Ég held ég hafi bara aldrei verið í eins efficient
klippingu sko, fannst ég alveg vera celeb. Mæli alveg með þessu.








