Sorgardagur og smökkunarkeppni
Já, það var sko sorgardagur
á mínu heimili á föstudaginn, harði diskurinn í lappanum mínum gaf upp öndina! Ég hef ekki haft tíma til að kaupa nýjan og setja vélina upp aftur til að átta mig betur á hversu slæmt þetta er. Ég á svona helstu gögn á bakköppi á netinu svo ég er ekkert svo stressaður með þetta, en samt eru slatti af stórum skjölum sem ég hef ekki verið að bakka upp, t.d. grunn skrárnar fyrir bæklingana sem ég geri fyrir Afríkuferðirnar. En það er allt eitthvað sem hægt er að gera aftur og er líka oftast betra þegar maður gerir upp á nýtt. Ég er svona að spá hvort þetta hafi verið sjálfsmorðstilraun hjá vélinni því ég er búinn að vera að renna hýru auga til nýrrar vélar svo mín hefur kannski orðið abbó. Því miður hef ég ekki alveg efni á nýrri vél akkúrat núna, en svona til öryggis, þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á framlög í tækjasjóð Jóhannesar
Ég hugsa að ég verði að láta mér nægja að kaupa nýjan harðan disk og setja vélina upp aftur. Get víst ekki kvartað mikið, hún hefur reynst mér vel og ég er ánægður með hana þó mann langi alltaf í nýja vél.
En að öðrum málum, skellti mér í gær og fylgdist með undankeppninni í kaffismökkun. Mótið fór fram í höfuðstöðvum Kaffitárs í Njarðvíkum og það var mikið fjör og stemming að vanda. Árni (brennslumeistarinn hjá Te og Kaffi) varði titilinn sem íslandsmeistari í kaffismökkun en hann varð einmitt í 2. sæti í heimsmeistarakeppninni á síðasta ári, svo hann veit eitt og annað um þetta. Setti hér fyrir neðan mynd af honum og Tuma, kaffibarþjóni hjá Kaffitári þegar þeir voru að keppa í undankeppninni.

Því miður þurfti ég að fara áður en úrslitin voru því ég átti eftir að vinna alveg helling. Var að skila af mér smá leiðbeiningum fyrir vinnuna um hvað ég hef verið að vinna í svo þau geti séð um mín mál meðan við Sigrún förum til Afríku. Núna er sunnudagur og það þýðir að ekki á morgun heldur hinn leggjum við af stað til Uganda!!!! Hlakka ekkert smá til, verður svooooooo gott að komast aðeins út í sól og hita og skipta um umhverfi. Allt of langt síðan við fórum út síðast. Eftir górilluferðina í Uganda og Rúanda ætlum við að stoppa eina nótt í Mombasa og fara þaðan yfir til Tansaníu og skoða Usambara fjöllin og keyra þaðan upp til Moshi sem er rétt við rætur Kilimanjaro. Hvorki ég né Sigrún höfum komið í Usambara fjöllin áður svo þetta verður mjög skemmtileg og spennandi ferð, ekki það allar ferðirnar eru spennandi á sinn hátt. Þó maður hafi komið á staðina áður þá sér maður samt alltaf eitthvað nýtt og lærir eitthvað nýtt.








