Kaffi í góðum vínanda

Hjörtur sigurvegari og Sonja yfirdómari
Í kvöld var keppt í annað sinn í Kaffi í góðum vínanda, en það er kaffikeppni þar sem keppt er um áfenga drykki. Keppendur þurfa að úbúa bæði Irish Coffee og svo frjálsan drykk og svo er gefin einkunn bæði fyrir frammistöðu keppenda og líka hvernig afraksturinn bragðast. Keppnin var mjög jöfn og skemmtileg og óhætt að segja að vel hafi tekist til. Hjörtur (sem vann hjá Kaffitári) varði titilinn frá því í fyrra og verður því fulltrúi okkar á heimsmeistaramótinu Í Köben í júní, Kristín var í 2. sæti og Kata í 3. (báðar frá Kaffitári). Ég sat með sveittan skallan að dæma en þar sem ég hef nú ekki mikið vit á áfengi sá ég um að dæma frammistöðu keppendanna, fylgjast með hvort þetta væri ekki allt rétt gert og meta útlitið á drykkjunum.
Svona til gamans má líka taka fram að í febrúar var líka keppt í kaffismökkun og Árni (Te og Kaffi) varði þar íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra, í úrslitunum þar náði Árni að vera með 8 bolla rétta (af 8 bollum) á innan við 3 mínútum, helvíti gott það! Ég náði því miður ekki að sjá nema fyrrihlutann á þeirri keppni en hún var helgina áður en við fórum út núna í febrúar.








