Tökubarnið ég

Vinir okkar Sigrúnar eru í svona óformlegum gönguhóp og sáu aumur á þessum sveitaómaga og buðu mér að koma með upp á Heklu um helgina, ég var því eiginlega tökubarn þarna í hópnum. En þetta var mjög gaman og var orðið alveg nauðsynlegt að komast aðeins út fyrir borg óttans. Veðrið hefði varla geta verið betra, sól og smá gola eins og sést á myndinni hér að ofan. Eina sem hefði verið betra er að hnéð á Sigrúnu væri í lagi og hún hefði komist með, en ég fékk alveg killer nesti að vanda! Nú er bara um að gera að nýta momentumið
og fara eitthvað meira! Það eru blikur á lofti með Eyjafjallajökul og svo Hvannadalshnúk!








