Íslandsmeistarinn 2008

Þá er Íslandsmeistarmót kaffibarþjóna 2008 búið og búið að krýna nýjan Íslandsmeistara. Keppnin var mjög skemmtileg og fín stemmning. Ég var þarna sem tæknidómari og samdómarar voru ekki af verri endanum, 2 núverandi heimsmeistarar (í smökkun og heimsmeistari kaffibarþjóna 2007), 2 fyrrverandi Íslandsmeistarar og svo einn úr dómnefndinni fyrir heimsmeistaramótið núna í ár. Ég lærði því alveg helling sjálfur sem er kannski ekki alveg nógu gott því nú dæmi ég mína eigin espressóa enn harðar!
Myndin hér að ofan er af sigurvegurunum í ár, Pálmar, nýkrýndur Íslandssmeistari er þarna lengst til vinstri á myndinni. Úrslitin voru sem hér segir:
- Pálmar (Te og Kaffi)
- Harpa (Kaffitár)
- Kata (kaffitár)
Besti espressoinn: Harpa (Kaffitár)
Besti cappuchinoinn: Harpa (Kaffitár)
Besti frjálsi drykkurinn: Harpa (Kaffitár)
Hæsta einkunn fyrir tækni: Íris (Kaffitár)
Einnig var keppt í mjólkurlist og hreppti Jónína Íslandsmeistaratitilinn fyrir það. Það verða því Jónína og Pálmar sem keppa fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótinu í Danmörku í sumar.








