Nýtt ríkisfang óskast!
Ég vissi að Íslendingar sem þjóð eru upp til hópa plebbar og aftarlega á merinni með ansi margt en, í einfeldni minni, hélt ég virkilega að það væru takmörk! Við tölum alltaf (og í sömu andrá sannfærum okkur sjálf um það) eins og við séum svo veraldarvön og stöndum svo framarlega á öllum sviðum, teljum okkur mest best og frábærust! Í reynd erum við bara með svakalega minnimáttarkennd og reynum allt sem við getum til að fela það að við erum afdala sveitatúttur í lopapeysum. Við gerum grín að nýríkum Rússum, hvað þeir séu nú svona og hinsegin og beri bara enga virðingu fyrir náttúrunni o.fl. Hvernig var nú aftur máltækið með flísina…
Sem heild eru Íslendingar sífellt að tala um hvað við eigum nú fallega náttúru og ef maður vissi ekki betur þá mætti skilja lang flesta Íslendinga þannig að það væri bara enginn staður í heiminum sem væri nálægt því jafn fallegur og það sem meðal Jóninn sér út um stofugluggann hjá sér, hvað þá einhverja af perlum landsins
. En hvað gera íslendingar við þessa blessuðu náttúru sína, smella eins og einu uppistöðulóni hér og einu þar og svo drita álverum út um allt eins og skreytingu á köku!
Sömu Íslendingar fara til útlanda og fussa og sveia yfir menguninni sem er í stórborgunum, eitthvað annað en á Íslandi sko! Ég man samt oft eftir því að horfa yfir Reykjavík úr Hnoðraholtinu fyrir mörgum árum og sjá þetta svakalega gula mengunarský sem hvíldi yfir borginni, ekki alveg eins tært loft og maður hefði haldið miðað við hvað kórinn syngur.
Eins hneykslast Íslendingar á þessum bananalýðveldum úti í heimi þar sem ríkir svo mikil spilling og ég veit ekki hvað. Ég tel mig nú ekki vera neinn stjórnmálafræðing, en mér þykir samt eitthvað rotið við það að hleypa manni aftur á þing sem hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir brot sem hann framdi meðan hann var á þingi. Jú, fólki verða á mistök og sumir eiga skilið að fá annað tækifæri, en kannski ekki alveg á þingi, mér finnst það aðeins of nálægt því að verðlauna kauða verkið. (Tek það samt fram að það er ekki einsdæmi á Íslandi að fábjánar komist á þing, mýmörg dæmi um það út um allan heim.)
Og að blessuðum ísbirninum, sem er svo sem ástæðan fyrir þessu þvaðri í mér. Íslendingar plöffuðu niður þann fyrsta, sá seinni hefur enn séns á að þetta fari allt vel. En það sem lét mig endanlega missa allt álit á þessari þjóð var að sjá í Fréttablaðinu í dag að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er eitthvað að spá í að taka inn nýjar dýrategundir. Við erum ekki að tala um að taka inn nýja húsdýrategund, nei það væri nú ekki nógu fínt! Þeir eru að velta fyrir sér ísbjörnum, mörgæsum og jafnvel og Síberíutígrum! Ég gjörsamlega fyrirlít dýragarða og alla þá staði sem halda villtum dýrum í búrum. Ég rétt næ að gúddera Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í þeirri mynd sem hann er núna, þetta eru jú flest húsdýr og því ekki mikill munur á að vera með dýrin þarna niðri í Laugardal eða á bóndabæ einhvers staðar. Geiturnar, grísirnir og félagar þeirra sem eru þarna eru jú húsdýr en ekki vilt dýr sem eiga heima úti í náttúrunni langt í burtu frá manninum. En að láta sér detta í hug að flytja inn villt dýr og hafa þau í búrum eða á lokuðum svæðum er alveg fyrir neðan allar hellur. Það tilheyrir tímum þar sem barnaþrælkun tíðkaðist og þrælar þóttu sjálfsagður hlutur. Mér liggur forvitni á að vita afstöðu forráðamanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins til þeirra mála?
Íslendingar halda að útlendingar sjái okkur sem einhver náttúrubörn í svakalega fallegri paradís. Því miður erum við búin að byggja of margar virkjanir og veiða of marga hvali til að splundra þeirri ímynd. Og ef við förum svo að koma okkur upp dýragarði með fágætum dýrum í útrýmingarhættu þá held ég að við verðum endanlega afskrifuð hjá þeim sem þykja eitthvað til náttúru koma, sett á stall með hinum nýríku Rússunum eða Kínverjum sem er sama um allt sem heitir náttúra og bera enga virðingu fyrir einu né neinu.
Ég held líka að ef það kemur Síberíutígrisdýr hingað verði það til þess að þessi varanlegi bjánahrollur sem ég er með verði mér hreinlega ofviða og ég neyðist til að skipta um ríkisborgararétt. Spurning hvort það sé nóg, ætli það sé hægt að afneita mannskepnunni sem heild og fara í tegundaskiptaaðgerð?
Ég tek það samt fram að auðvitað eru ekki allir sem falla undir þessa skilgreiningu, nærtækasta dæmið er t.d. að Novator bauðst til að borga fyrir flutning á birninum, er mest hissa að Björgólfur Thor hafi ekki bara boðist til að skutla honum líka í einkaþotunni
Eins hefur mér alltaf þótt Sigríður Tómasdóttir algjör gella. Svo er gaman að sjá að Björk og Sigur Rós eru að gera sitt til að vekja athygli á náttúrumálefnum. Það vantar fleiri svona Íslendinga!


