Nýi afrika.is loksins kominn út á netið

Þá er ég loksins búinn að opna nýjan vef Afríku Ævintýraferða, afrika.is. Við Sigrún erum búin að vera að dunda í þessu síðustu mánuði, svona á kvöldin og um helgar með hjálp Borgars og Elínar að sjálfsögðu. Ég sá um forritun en Sigrún um efnistökin, texta og myndir (hún tók persónulega hverja einustu mynd sem sést á vefnum).
Stærsti gallinn við að vinna í þessum vef er að mann langar alltaf svo hrikalega mikið að fara aftur út þegar maður er að vinna í myndunum (eða bara skoða þær eins og ég datt
stundum í).
Vefurinn er nú ekki alveg fullbúinn, það eru nokkur atriði sem við viljum bæta og höldum því ótrauð áfram þó við séum búin að opna hann.



2-Aug-2008 kl. 17:19
Til lukkku með siðuna, mér finnst hún alveg óskaplega smekklega uppsett skal ég segja þér.. !!!