Kominn til byggða

Gönguhópurinn var með þau háleitu markmið að fara á Hveravelli um síðustu helgi og ekki bara það heldur slá upp sushi veislu líka. Við lögðum af stað í ágætu veðri, 12 manns + 1 hundur á 3 jeppum. Allt gekk rosa vel þar til við komum upp fyrir Gullfoss þegar ég fór aðeins of langt út af veginum þegar við mættum jeppa á fullri ferð. Ég skellti mér út í kant til að gefa honum séns á að komast en sat svo fastur þar. Við létum það ekki á okkur fá, mér var kippt upp og við héldum áfram þrátt fyrir versnandi veður. Eftir um hálftíma í viðbót var svo ákveðið að snúa við og fara bara í sumarbústað.
Okkur tókst svo eftir töluvert vesen (nokkrar festur, smá ýting og mokstur) að komast aftur niður á malbik og inn á Geysi. Þar var sveitin skönnuð fyrir gistipláss og var skilyrði að það væri heitur pottur á staðnum (fólk búið að láta sig dreyma um pottinn á Hveravöllum). Það fundust svo bústaðir á Minni Borg þar sem var slegið upp mega sushi veislu undir stjórn Súsí Wonder (Sigrúnu). Af þeim 12 sem voru í hópnum voru 10 sem borðuðu sushi og skiptu með sér 680 bitum! Það voru einhverjir 30 eftir af þessum 680 en þeim voru gerð góð skil um morguninn, ekki einn biti eftir þegar við fórum heim. Reyndar voru margar rúllurnar ekki svo stórar svo þetta voru um 500-550 venjulegir bitar. Sama er…einn dó sushidauða í sófanum vegna ofáts.
mmmm langar í meira sushi….


