Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Samantekt fyrir January, 2009


Stoltur górillufaðir

16. January 2009

Ubuzwu

Þá hefur eitt lítið kríli bæst í fjölskylduna okkar Sigrúnar. Við fengum alveg frábæra jólagjöf frá Elvu og Óla, en þau gáfu okkur semsagt ættleiðingu á górilluunga í Rwanda. Við fengum svo pappírana um þetta allt í vikunni og alveg helling af upplýsingum um Ubuzwu (hann heitir það) og myndir líka. Ubuzwu er hluti af þeim fáu fjallagórilllum sem eftir eru í Rwanda og við Sigrún heimsóttum í febrúar ’08. Fyrir þá sem hafa áhuga þá eru nokkrar myndir frá þeirri ferð á flickr síðunni okkar (tek samt fram að við fórum ekkiað heimsækja fjölskylduna hans Ubuzwu.)

Fyrir eigum við Sigrún svo tígrisdýr og ísbjörn, frekar svona fjölbreytt fjölskylda! Ég þakka bara fyrir að börnin eru á heimaslóðum en ekki í íbúðinni hjá okkur, held það myndi nú ganga smá á ef við ættum að skjóta skjóli yfir þau líka…

Ég bendi líka öllum sem vilja styrkja svona gott málefni á Dian Fossey Gorilla Fund International nú eða WWF

Viltu segja eitthvað? (2)

 

 
 
 

Myndirnar okkar


Fatal error: Call to a member function show_random() on a non-object in /home/eddakvae/urbanmania.com/wp-content/themes/urbanmania/footer.php on line 16