Stoltur górillufaðir

Þá hefur eitt lítið kríli bæst í fjölskylduna
okkar Sigrúnar. Við fengum alveg frábæra jólagjöf frá Elvu og Óla, en þau gáfu okkur semsagt ættleiðingu
á górilluunga í Rwanda. Við fengum svo pappírana um þetta allt í vikunni og alveg helling af upplýsingum um Ubuzwu (hann heitir það) og myndir líka. Ubuzwu er hluti af þeim fáu fjallagórilllum sem eftir eru í Rwanda og við Sigrún heimsóttum í febrúar ’08. Fyrir þá sem hafa áhuga þá eru nokkrar myndir frá þeirri ferð á flickr síðunni okkar (tek samt fram að við fórum ekkiað heimsækja fjölskylduna hans Ubuzwu.)
Fyrir eigum við Sigrún svo tígrisdýr og ísbjörn, frekar svona fjölbreytt fjölskylda! Ég þakka bara fyrir að börnin
eru á heimaslóðum en ekki í íbúðinni hjá okkur, held það myndi nú ganga smá á ef við ættum að skjóta skjóli yfir þau líka…
Ég bendi líka öllum sem vilja styrkja svona gott málefni á Dian Fossey Gorilla Fund International nú eða WWF



17-Jan-2009 kl. 22:10
Er ég þá amma dýragarðsins eða þannig?
17-Jan-2009 kl. 23:48
Það hlýtur að vera