Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Kominn til byggða

Gengið niður eitt gil

Þá er maður kominn aftur til byggða eftir smá fjallabrölt um helgina. Var svo heppinn að fá vetrarfjallamennskunámskeið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum í jólagjöf (takk! Sigrún og mamma fyrir námskeiðið og rúmlega það) og eyddi því helginni í að læra það helsta um hvernig maður hegðar sér á fjöllum á veturna. Þá er átt við tækni í klifri, læra að lesa í snjóinn og meta snjóflóðahættu, hnýta hnúta og svo spáð aðeins í búnaði og hvernig hann er notaður. Þetta var mjög gaman og m.a. var eitt af verkefnunum að grafa snjóhús sem ég og 2 aðrir gistum svo í. Þvi miður var veðrið ekki alveg að leika við okkur um nóttina, hiti og rigning eru ekki beint til að styrkja snjóhús. Við urðum því frá að hverfa um miðja nótt og hlaupa með okkar hafurtask niður í skálann sem var þarna rétt hjá. Sigrún sendi mig af stað með eðal nesti að vanda og andlitið hreinlega datt af samferðamönnum þegar ég dró upp þessa líka eðal Pecanköku með súkkulaði,- og cashewmauksfyllingu. Ekki allir sem trítla á fjöll með heila köku í bakpokanum! Þetta var mjög vel heppnað námskeið og alveg víst að þetta á allt eftir að koma sér vel seinna meir þegar maður fer að príla eitthvað að vetrarlagi.


Viltu segja eitthvað?

Stjörnumerkta reiti (*) er nauðsynlegt að fylla út!

     

  (ekki birt)

 

XHTML: Hægt er að nota eftirfarandi tög: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>


 
 
 

Myndirnar okkar


Fatal error: Call to a member function show_random() on a non-object in /home/eddakvae/urbanmania.com/wp-content/themes/urbanmania/footer.php on line 16