Loksins, nýr sími sem gerir eitthvað öðruvísi
Held ég geti ekki setið á mér lengur með að blogga um smá tæknidót.Frá því að ég prófaði Palm Pilot fyrst, fyrir milljón árum eða svo, hef ég alltaf verið hrifinn af þeirra nálgun á lófatölvur. Hef átt nokkra og notað mikið, las m.a. alla Hringadóttinssögu, Harry Potter, Njálu ofl. á Palminum mínum meðan ég var í lestinni þegar við bjuggum í London. Palm var upphaflega bara lófatölva en svo fóru lófatölvurnar að renna saman við síma og Palm fylgdi í kjölfarið. Þeim tókst samt aldrei, eftir að hafa sameinað lófatölvuna og símann, að koma með vöru sem virkaði vel og helltust því úr lestinni og maður var alveg hættur að spá í hvað Palm var að gera. Ég var eiginlega búinn að afskrifa þá alveg þar til í upphafi þessa árs þegar þeir kynntu nýjan síma og nýtt stýrikerfi. Það er greinilegt að þeir hafa verið mjög uppteknir í þróunardeildinni og því ekki verið að einbeita sér mjög mikið að öðru. Með þessum nýja síma (ekki kominn á markað ennþá en kemur á þessu ári) virðist þeim loksins takast að koma með síma og lófatölvu sem virkar. Þeir einbeita sér aftur að því sem þeir voru mjög góðir í, að einfalda og auðvelda lífið fyrir notandanum. Sameina upplýsingar sem eru dreifðar um hina og þessa „accounta” á netinu, draga þetta allt saman í mjög flott stýrikerfi sem ég get ekki beðið eftir að fikta í. Það er langt síðan ég hef séð jafn áhugaverðan síma og þennan (símtækið sjálft er allt í lagi en það sem skiptir máli og er spennandi við hann er stýrikerfið), jújú, mér fannst iPhone áhugaverður, en ekki í líkingu við þennan (og eftir að hafa notað iPhone er ég mjög ánægður að hafa ekki keypt mér einn, var alls ekki að fíla hann). Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hér ágætt video þar sem er verið að sýna eitt og annað í þessu nýja stýrikerfi þeirra.


