Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Samantekt fyrir April, 2009


Rwenzori fjöllin

17. April 2009
Mynd úr frumskógunum í Rwenzori fjöllunum
Myndin er fengið að láni frá Panoramio vefnum

Jæja, þá er ég farinn að hlakka til næstu Afríku ferðar! Þetta verður gönguferð um Rwenzori fjöllin, ferð sem mig er búið að dreyma um að fara síðan Borgar mágur minn sagði mér fyrst frá þessum fjöllum. Rwenzori fjallgarðurinn liggur á landamærum Uganda og Congo og þar sem hæsti tindurinn er akkúrat á landamærunum þá er aldrei að vita að maður nái loksins að koma til Congo eftir að það munaði svo litlu síðast (aðeins ein á skildi á milli). Landslagið þarna er alveg magnað eins og myndin hér að ofan gefur til kynna. Gangan sjálf er 8 dagar og svo eftir hana er farið í safarí og endað á bökkum Nílar þar sem hægt er að fara í rafting (flúðasiglingu) niður 5. gráðu flúðir. Ég mæli hiklaust með slíku, skemmti mér konunglega síðast eins og videoið fyrir neðan sýnir. Ferðin er í febrúar á næsta ári svo það er nægur tími fyrir áhugasama að safna og koma sér í form! Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Afríku Ævintýraferða.

Bendi svo á að ef þú ert með einhverjar spurningar geturðu haft samband við mig á netfangið joe[hja]afrika.is. Ég verð líka með kynningu á ferðinni, verður auglýst síðar

Viltu segja eitthvað?

 

Switch to our mobile site


 
 
 

Myndirnar okkar

Górillur í  Virunga fjöllunum, Rwanda
Sigrún holds horses
Botnsheiði
Best að skoða málið vel
Ãvintýraumhverfi
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur