Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Þegar mamma rekur á eftir manni…

…er þá ekki kominn tími til að taka sig á? Já, mamma var að skamma mig um daginn fyrir að það væri ekkert að gerast á þessari bloggsíðu minni. Ég held að ég verði barasta að bregðast við því og reyna að endurvekja bloggið. Búinn að vera í dvala allt of lengi.

Ég get nú samt ekki sagt að það sé neitt rosalega markvert sem er í fréttum. Látum okkur sjá, hef ekki bloggað síðan í apríl, jú það hefur nú eitthvað smá gerst. Við Sigrún vorum t.d. allan maí úti í London. Var voða næs að fá smá forskot á vorið, hitta vini og kunningja og hafa það gott. Svo hef ég líka verið að vinna að því að skipuleggja Norðurlandamót Kaffibarþjóna (www.nordicbaristacup.com) ásamt fleira góðu fólki. Eins og nafnið bendir til er þetta keppni milli kaffibarþjóna frá öllum norðurlöndunum. Keppnin er frá 16. til 19. september og er bæði í Reykjavík og svo verður farið með allan skarann út á land líka. Þetta er heljar production, gert ráð fyrir 120 manns, allt forfallnir kaffinördar. Það er enn alveg heill hellingur eftir sem þarf að ganga frá áður en þetta byrjar svo mér ætti ekki að leiðast næstu 2 mánuði. Fyrir utan þetta hefur lífið aðalega snúist um vinna, borða sofa, eins óspennandi og það er. Ætlaði að vera miklu duglegri að fara í göngur í sumar (gerði eina mislukkaða tilraun, þurfti að snúa við) og var líka að vonast til að geta farið í hestaferð í sumar. En það er nú líka bara sjálfum mér um að kenna að kunna ekki að segja nei við vinnu. Það er heldur ekki hægt að segja nei við vinnu á þessum síðustu og verstu…

Það er kannski bara ráð að láta þetta duga í bili. Er ekki sagt að maður eigi að fara hægt af stað? Kannski von til þess að maður haldi þessu betur við núna, batnandi manni er best að lifa og allt það.

3 hafa sagt eitthvað um “Þegar mamma rekur á eftir manni…”

  1. mamma  sagði:

    Gott að hafa gömlu til að reka á eftir þér. mamma

  2. Hrundski  sagði:

    já sammála múttu þinni – ég ætla líka að reka á eftir þér…. og hvaða bull er það að segja … ekki neitt rosalega markvert sem er í fréttum… je ræt…. :)

  3. JÖE  sagði:

    well, gefðu mér hálfan mánuð – þrjár vikur og þá skal ég sjá hvort ég hafi fundið eitthvað markvert…


Viltu segja eitthvað?

Stjörnumerkta reiti (*) er nauðsynlegt að fylla út!

     

  (ekki birt)

 

XHTML: Hægt er að nota eftirfarandi tög: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>


 
 
 

Myndirnar okkar


Fatal error: Call to a member function show_random() on a non-object in /home/eddakvae/urbanmania.com/wp-content/themes/urbanmania/footer.php on line 16