Espresso
Ég er mikill áhugamaður um kaffi og kaffigerð og þá einkum og sér ílagi espresso. Ég er er með Elektra Micro Casa Semiautomatica vél hérna heima og hef verið að fikta mig áfram með hana. Einnig er ég með Europiccola vél frá La Pavoni og svo með Mazzer Mini malara til að mala baunirnar. Þessar vélar krefjast þess að notandinn leggi vinnu í hvern kaffibolla, maður ýtir ekki bara á einn takka og fær kaffi í bollann. Ég get stjórnað öllum þáttum í ferlinu, kaffinu, möluninni og þjöppuninni en svo fer það eftir því hvora vél ég nota hvernig skotið er gert.
Þar sem ég stjórna þessu öllu er alltaf jafn gaman þegar vel tekst til og skotið heppnast vel, en það er líka engum öðrum um að kenna en mér ef ég klúðra þessu öllu og endað með hræðilegt skot, brennt, flatt, biturt og súrt. Ég valdi þessa vél einmitt vegna þess að ég vil fá að stjórna sem mestu!
Á þessari síðu er að finna umsagnir um espresso sem ég hef smakkað og kaffihús sem ég hef komið á og mun ég reyna að bæta inn umsögnum eftir því sem líður á. Þetta er allt algjörlega mitt mat á hlutunum svo ef þú ert ekki sammála lesandi góður þá verðum við bara að vera sammála um að vera ósammála. Eftir því sem á líður mun ég svo reyna að bæta inn fleiri efnisflokkum svo sem kaffiuppskriftum, umsögnum um espressovélar og öðru kaffi tengdu.
Mig langar líka að taka fram muninn á espresso-
annarsvegar og kaffihúsaumsagnirnar
hinsvegar. Í umsögnum um kaffihúsin þá er ég að skoða kaffihúsið sjálft alveg óháð kaffinu þeirra, meira að spá í andrúmsloftinu á kaffihúsinu, framkomu starfsfólks og þessháttar. Espressoumsagnirnar eru svo aftur um kaffið sjálft og þá er ég eingöngu að smakka það í espresso formi.


