Espressotegundir - After Dinner
Nafn:
After Dinner
Frá:
Te & Kaffi
Uppruni:
Úr mörgum áttum
Prófað:
Heima
Aðferð:
Pressukanna
Hvenær:
22. júlí 2004
Umsögn:
Ég fékk þetta kaffi að gjöf meðan við bjuggum úti í London. Vinir okkar, Helga og Þórhallur, komu í heimsókn frá Íslandi og færðu okkur þetta fyrir gistinguna. Ég hafði ekki smakkað það og ekki einu sinni séð það í búðinni hjá Te & Kaffi. Þetta kaffi kom reglulega á óvart, virkilega fyllt, dökkristað og bragðmikið án þess að vera beiskt. Nafnið er því mjög lýsandi fyrir þetta kaffi, það hentar einstaklega vel á kvöldin eftir góðan mat.
Einkunn:








