Espressotegundir - Espresso Altura
Nafn:
Espresso Altura
Frá:
Te & Kaffi
Uppruni:
Blanda
Prófað:
Heima
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
4. oktober 2004
Umsögn:
Þrátt fyrir að hafa fikrað mig áfram með mismunandi mölun, þrýsting, þjöppun og meira að segja hitastig hef ég ekki náð að gera skot sem ég hef verið ánægður með. Bollinn er ýmist súr, beiskur eða moldarkenndur, í ætt við grískt kafi (þegar ég malaði á næstum því fínustu stillingu á malaranum).
Oftast var bollinn þó flatur, vatnskenndur og frekar í beiskari kanntinum. Hann sat mjög aftarlega en með ágætis kanileftirbragði. Samt ekki þannig að ég myndi kaupa þetta kaffi aftur fyrir mína vél.
Einkunn:








