Espressotegundir - Kaffi hússin
Ég er búinn að vera í svolitlu basli með Tinderbox kaffið og hvað ég á að segja um það. Ég bar miklar væntingar til þess þar sem tveir af 6 efstu keppendum í bresku kaffibarþjónakeppninni komu frá Tinderbox kaffihúsunum. Ég er nú búinn með hálft kíló af því og samt ekki búinn að mynda mér fulla skoðun á því. Það er ekki hægt að kaupa það í minni einingum svo það náði því miður að eldast aðeins hjá mér. Kaffið var mjög óstöðugt og engan veginn hægt að treysta á hver útkoman yrði. Það sem mér fannst einna helst að því var skortur á fyllingu sem var líklega það eini stöðugleikinn í kaffinu. Það komu mjög góðir bollar inn á milli en í heildina var þetta frekar flatt og óspennandi kaffi. Góðu bollarnir voru með súkkulaðikeim og oft angan af píputóbaki og möndlum en þeir voru því miður ekki nógu margir slíkir. Ég vil samt taka það fram að kaffið á Tinderbox kaffihúsinu var betra svo kannski hentar þetta kaffi ekki vélinni minni.








