Espressotegundir - Daterra Farm
Nafn:
Daterra Farm
Frá:
Terroir coffee
Uppruni:
Brasilía
Prófað:
Heima
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
24. maí 2005
Umsögn:
Frekar mikið dökkt súkkulaði bragð með smá keim af píputóbaki og heslihnetum. Cremað er svolítið dökkt og ilmurinn kraftmikill. Jafnvægið er nokkuð gott og góð fylling og mikil mýkt í því líka. Einstaklega ljúft einekrukaffi, milliristað og langt, gott eftirbragð.
Það má svo til gamans taka það fram að Daninn Troels Overdal Poulsen, heimsmeistari kaffibarþjóna 2005, notaði kaffi frá Terroir kaffibrennsluni þegar hann vann kaffibarþjónakeppnina. Ég fór og skoðaði þessa kaffibrennslu þegar ég var í Boston á dögunum og ég mun skrifa um þá heimsókn fljótlega og birta á síðunni.
Einkunn:








