Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Espresso blend

 
Nafn:
Espresso blend
Frá:
Harrods
Uppruni:
Mið- og Suður-Ameríka
Prófað:
Heima
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
2. nóvember 2005
Umsögn:
Keypti þetta kaffi þegar ég þurfti að fara í Harrods um daginn. Var forvitinn að vita hvort daman í kaffinu hjá þeim vissi eitthvað um kaffi. Kom mér skemmtilega á óvart að hún virtist alveg vita sínu viti og að þeir eru með ferskt kaffi, aldrei mera en viku gamalt (viku frá ristun) sem er nú bara gott miðað við að þetta er ekki sérhæfð kaffiverslun heldur stórverslun. Þó kaffið sé ekki þeirra brennsla þannig séð þá er það selt undir þeirra merkjum. Gott frekar milt með miklum skörpum sítrus keim. Liggur mjög framarlega á tungunni og er með ágætis fyllingu en fer ekki mikið fyrir mildum undirtónum. Stöðugleikinn í því var ekki alveg nógu góður, var stundum biturt og flatt þó oftast væri það ágætt.
 
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffi: 3 af 5 mögulegum

 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Borgar og Embla á flugvellinum í Mombasa
Fríða og Sigrún algjörlega veðurbarðar
Kjötið skorið
p5160034
Smá myndapása
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur