Espressotegundir - Kaffi hússins
Nafn:
Kaffi hússins
Frá:
Kaffitár
Uppruni:
Blanda
Prófað:
Á kaffihúsi
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
22. júlí 2004
Umsögn:
Minn fyrsti espresso var frá Kaffitár og hefur því þann vafasama heiður að vera sá sem nær allt er miðað við. Kaffið er ristað með French Roast ristun og því mjög dökkt og soldið reykt. Það verður því miður stundum örlítið biturt en það er nú líklega bara lögunin í það skiptið sem veldur. Eftirbragðið er með smá súkkulaði- og karmellukeim og varir lengi.
Einkunn:








