Espressotegundir - Kaffi hússins
Nafn:
Kaffi hússins
Frá:
Emmerys
Uppruni:
Ekki vitað
Prófað:
Á kaffihúsi
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
22. júlí 2004
Umsögn:
Espressóinn sem ég fékk á Emmerys í Árhúsum var frekar brenndur, reyktur og sat framarlega. Hann var örlítið einsleitur en þó með pínu möndlukeim og ágætis fyllingu. Þetta var mjög gott skot og mjög ljúft eftirbragð. Þar sem hann var ekki súr eins og svo oft virðist vera með svona dökkar blöndur féll hann mjög vel í kramið hjá mér.
Ég hef því miður ekki haft tækifæri til að fara aftur á Emmerys í Árhúsum til að athuga hversu stöðugt þetta er hjá þeim.
Einkunn:








