Espressotegundir - Espresso
Nafn:
Espresso
Frá:
Bodum
Uppruni:
Ekki vitað
Prófað:
Heima
Aðferð:
Espresso vél
Hvenær:
12. febrúar 2004
Umsögn:
Ljúfur, reyktur og bragðgóður bolli. Fékk poka af þessu kaffi að gjöf frá Smára og Önnu Stínu þegar þau komu frá Köben og ég varð að sjálfsögðu hæstánægður með það. Fyrstu viðbrögð þegar ég leit ofan í kaffipokann voru svolítið blendin. Baunirnar virkuðu mjög dökkristaðar að sjá en samt fann maður strax á ilminum að það var ekki mikill stuðningur í þeim, mjög léttur og fínn ilmur. Þegar ég var búinn að hella upp á þetta kaffi var ilmurinn ennþá mjög léttur og alls ekki í ætt við þann fyllta espressoilm sem ég er hrifnastur af.
Hvað kaffið sjálft varðar veit ég nú ekki hvort mér finnist það nógu kröftugt til að geta kallast espresso, það má samt ekki misskilja að mér hafi ekki þótt þetta gott kaffi, þvert á móti, kaffið var alveg afbragð. Það var mjög mjúkt á bragðið án þess þó að virka þunnt eða flat, hentar vel með léttum veitingum myndi ég ætla. Eftirbragðið er milt og gott og soldið sætt, með súkkulaðikeim og situr frekar aftarlega á tungunni. Þetta er kaffi sem ég myndi alveg kaupa mér aftur.
Einkunn:








