Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Nýtt í kaffiheiminum

2. September 2009

Ég hef áður talað um snilldarsíðuna Engrish.com (þar sem mistök í þýðingum fá að njóta sín). Ég skoða hana alltaf öðru hvoru og rakst á þetta hér um daginn, hafði séð þetta áður en var búinn að gleyma að blogga um þetta. Þetta hlýtur að vera einhver nýjung í kaffiheiminum sem ég hef ekki smakkað áður, spurning hvort maður leggi í hana….

Viltu segja eitthvað?

 

Þegar mamma rekur á eftir manni…

25. July 2009

…er þá ekki kominn tími til að taka sig á? Já, mamma var að skamma mig um daginn fyrir að það væri ekkert að gerast á þessari bloggsíðu minni. Ég held að ég verði barasta að bregðast við því og reyna að endurvekja bloggið. Búinn að vera í dvala allt of lengi.

Ég get nú samt ekki sagt að það sé neitt rosalega markvert sem er í fréttum. Látum okkur sjá, hef ekki bloggað síðan í apríl, jú það hefur nú eitthvað smá gerst. Við Sigrún vorum t.d. allan maí úti í London. Var voða næs að fá smá forskot á vorið, hitta vini og kunningja og hafa það gott. Svo hef ég líka verið að vinna að því að skipuleggja Norðurlandamót Kaffibarþjóna (www.nordicbaristacup.com) ásamt fleira góðu fólki. Eins og nafnið bendir til er þetta keppni milli kaffibarþjóna frá öllum norðurlöndunum. Keppnin er frá 16. til 19. september og er bæði í Reykjavík og svo verður farið með allan skarann út á land líka. Þetta er heljar production, gert ráð fyrir 120 manns, allt forfallnir kaffinördar. Það er enn alveg heill hellingur eftir sem þarf að ganga frá áður en þetta byrjar svo mér ætti ekki að leiðast næstu 2 mánuði. Fyrir utan þetta hefur lífið aðalega snúist um vinna, borða sofa, eins óspennandi og það er. Ætlaði að vera miklu duglegri að fara í göngur í sumar (gerði eina mislukkaða tilraun, þurfti að snúa við) og var líka að vonast til að geta farið í hestaferð í sumar. En það er nú líka bara sjálfum mér um að kenna að kunna ekki að segja nei við vinnu. Það er heldur ekki hægt að segja nei við vinnu á þessum síðustu og verstu…

Það er kannski bara ráð að láta þetta duga í bili. Er ekki sagt að maður eigi að fara hægt af stað? Kannski von til þess að maður haldi þessu betur við núna, batnandi manni er best að lifa og allt það.

Viltu segja eitthvað? (3)

 

Íslandsmeistarinn 2008

28. April 2008

þau 6 sem voru í úrslitum

Þá er Íslandsmeistarmót kaffibarþjóna 2008 búið og búið að krýna nýjan Íslandsmeistara. Keppnin var mjög skemmtileg og fín stemmning. Ég var þarna sem tæknidómari og samdómarar voru ekki af verri endanum, 2 núverandi heimsmeistarar (í smökkun og heimsmeistari kaffibarþjóna 2007), 2 fyrrverandi Íslandsmeistarar og svo einn úr dómnefndinni fyrir heimsmeistaramótið núna í ár. Ég lærði því alveg helling sjálfur sem er kannski ekki alveg nógu gott því nú dæmi ég mína eigin espressóa enn harðar!

Myndin hér að ofan er af sigurvegurunum í ár, Pálmar, nýkrýndur Íslandssmeistari er þarna lengst til vinstri á myndinni. Úrslitin voru sem hér segir:

  1. Pálmar (Te og Kaffi)
  2. Harpa (Kaffitár)
  3. Kata (kaffitár)

Besti espressoinn: Harpa (Kaffitár)

Besti cappuchinoinn: Harpa (Kaffitár)

Besti frjálsi drykkurinn: Harpa (Kaffitár)

Hæsta einkunn fyrir tækni: Íris (Kaffitár)

Einnig var keppt í mjólkurlist og hreppti Jónína Íslandsmeistaratitilinn fyrir það. Það verða því Jónína og Pálmar sem keppa fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótinu í Danmörku í sumar.

Viltu segja eitthvað? (2)

 

Íslandsmót kaffibarþjóna 2008

25. April 2008

Íslandsmeistaramót Kaffibarþjóna

Nú stendur íslandsmótið yfir, bara úrslitin eftir en þau eru á morgun, laugardag. Ég kem með úrslitin þegar þetta er búið!

Viltu segja eitthvað?

 

Kaffi í góðum vínanda

18. March 2008

Hjörtur og Sonja eftir keppnina
Hjörtur sigurvegari og Sonja yfirdómari

Í kvöld var keppt í annað sinn í Kaffi í góðum vínanda, en það er kaffikeppni þar sem keppt er um áfenga drykki. Keppendur þurfa að úbúa bæði Irish Coffee og svo frjálsan drykk og svo er gefin einkunn bæði fyrir frammistöðu keppenda og líka hvernig afraksturinn bragðast. Keppnin var mjög jöfn og skemmtileg og óhætt að segja að vel hafi tekist til. Hjörtur (sem vann hjá Kaffitári) varði titilinn frá því í fyrra og verður því fulltrúi okkar á heimsmeistaramótinu Í Köben í júní, Kristín var í 2. sæti og Kata í 3. (báðar frá Kaffitári). Ég sat með sveittan skallan að dæma en þar sem ég hef nú ekki mikið vit á áfengi sá ég um að dæma frammistöðu keppendanna, fylgjast með hvort þetta væri ekki allt rétt gert og meta útlitið á drykkjunum.

Svona til gamans má líka taka fram að í febrúar var líka keppt í kaffismökkun og Árni (Te og Kaffi) varði þar íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra, í úrslitunum þar náði Árni að vera með 8 bolla rétta (af 8 bollum) á innan við 3 mínútum, helvíti gott það! Ég náði því miður ekki að sjá nema fyrrihlutann á þeirri keppni en hún var helgina áður en við fórum út núna í febrúar.

Viltu segja eitthvað? (1)

 

I rolegheitum i Kenya

2. March 2008

Vid erum semsagt komin til Kenya nuna, vorum i Nairobi i nott og flugum svo til Mombasa i morgun. Tad er mjog rolegt yfir ollu herna, vantar alla turistana sem madur er vanur ad sja. Vid erum nuna hja vinafolki okkar sem byr vid strondina og verdum hja teim i nott. Forum svo med teim og Borgari og Elinu upp til Tansaniu a morgun. Gistum liklega a Moivaro Coffee lodge sem gaeti verid mjog gaman. Svo forum vid lika nidur til Usambara fjallanna i Tanzaniu.

Laet tetta gott heita, vil endilega drifa mig og fa mer sma sundsprett i Indlandshafinu…. (eg veit, tetta er erfitt lif, en einhver verdur ad lifa tvi)

Viltu segja eitthvað?

 

Sorgardagur og smökkunarkeppni

17. February 2008

Já, það var sko sorgardagur á mínu heimili á föstudaginn, harði diskurinn í lappanum mínum gaf upp öndina! Ég hef ekki haft tíma til að kaupa nýjan og setja vélina upp aftur til að átta mig betur á hversu slæmt þetta er. Ég á svona helstu gögn á bakköppi á netinu svo ég er ekkert svo stressaður með þetta, en samt eru slatti af stórum skjölum sem ég hef ekki verið að bakka upp, t.d. grunn skrárnar fyrir bæklingana sem ég geri fyrir Afríkuferðirnar. En það er allt eitthvað sem hægt er að gera aftur og er líka oftast betra þegar maður gerir upp á nýtt. Ég er svona að spá hvort þetta hafi verið sjálfsmorðstilraun hjá vélinni því ég er búinn að vera að renna hýru auga til nýrrar vélar svo mín hefur kannski orðið abbó. Því miður hef ég ekki alveg efni á nýrri vél akkúrat núna, en svona til öryggis, þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á framlög í tækjasjóð Jóhannesar :oops: Ég hugsa að ég verði að láta mér nægja að kaupa nýjan harðan disk og setja vélina upp aftur. Get víst ekki kvartað mikið, hún hefur reynst mér vel og ég er ánægður með hana þó mann langi alltaf í nýja vél.

En að öðrum málum, skellti mér í gær og fylgdist með undankeppninni í kaffismökkun. Mótið fór fram í höfuðstöðvum Kaffitárs í Njarðvíkum og það var mikið fjör og stemming að vanda. Árni (brennslumeistarinn hjá Te og Kaffi) varði titilinn sem íslandsmeistari í kaffismökkun en hann varð einmitt í 2. sæti í heimsmeistarakeppninni á síðasta ári, svo hann veit eitt og annað um þetta. Setti hér fyrir neðan mynd af honum og Tuma, kaffibarþjóni hjá Kaffitári þegar þeir voru að keppa í undankeppninni.

Árni og Tumi að keppa í kaffismökkun

Því miður þurfti ég að fara áður en úrslitin voru því ég átti eftir að vinna alveg helling. Var að skila af mér smá leiðbeiningum fyrir vinnuna um hvað ég hef verið að vinna í svo þau geti séð um mín mál meðan við Sigrún förum til Afríku. Núna er sunnudagur og það þýðir að ekki á morgun heldur hinn leggjum við af stað til Uganda!!!! Hlakka ekkert smá til, verður svooooooo gott að komast aðeins út í sól og hita og skipta um umhverfi. Allt of langt síðan við fórum út síðast. Eftir górilluferðina í Uganda og Rúanda ætlum við að stoppa eina nótt í Mombasa og fara þaðan yfir til Tansaníu og skoða Usambara fjöllin og keyra þaðan upp til Moshi sem er rétt við rætur Kilimanjaro. Hvorki ég né Sigrún höfum komið í Usambara fjöllin áður svo þetta verður mjög skemmtileg og spennandi ferð, ekki það allar ferðirnar eru spennandi á sinn hátt. Þó maður hafi komið á staðina áður þá sér maður samt alltaf eitthvað nýtt og lærir eitthvað nýtt.

Viltu segja eitthvað?

 

Espresso í útileguna

21. January 2008

Ég veit að ég er ekki næstum því nógu duglegur að blogga og því greip ég tækifærið þegar ég sá þetta. Ekki spurning maður þarf að taka svona með sér í göngurnar og sumarbústaðinn og ég tala nú ekki um á Kilimanjaro!

Viltu segja eitthvað? (3)

 

Jólin afstaðin, næst er það Rúanda

29. December 2007

Þá eru jólin búin þetta árið og það verður bara að segjast að það var alveg ágæt uppskera þetta árið eins og svo oft áður, fékk t.d. þessa fínu mannbrodda frá Sigrúnu. Verð bara að fara að klöngrast upp á jökul til að vígja þá ;) Við Sigrún höfðum það bara mjög rólegt og vorum 2 heima á aðfangadag. Á Þorláksmessu vorum við með hið árlega Þorláksmessuboð sem tókst alveg ágætlega, komu milli 50 og 60 manns. Sigrún á nú alveg heiðurinn af veitingunum en ég sá um kaffið! Held að flestir hafi bara verið sáttir við kaffið sem þeir fengu og alveg í skýjunum yfir öllum þeim kræsingum sem Sigrún bar á borð. Ég náði reyndar að detta alveg í kaffinördagírinn þegar einn félagi minn kom, álíka kaffinörd. Við vorum m.a. eitthvað að spá í að slá saman og panta hið víðfræga Black Cat kaffi frá Intelligentsia í Bandaríkjunum. Þetta er ein af þessum kaffiblöndum sem maður hefur lesið mikið um en hvorugur hefur fengið að smakka svo við vorum að spá í að bæta úr því. Væri gaman að panta öðruhvoru frá hinum og þessum gourmet kaffibrennslum hingað og þangað um heiminn. Sjáum hvað setur.

Annars er voða lítið á dagskrá næsta mánuðinn nema vinna, borða, sofa. Það verður aðeins meira spennandi lífið hjá okkur í febrúar og mars. Ég geri ráð fyrir að fara á GSMA Mobile World Congress í Barcelona og svo stuttu seinna erum við að fara að skoða górillur í Rúanda. Við förum til Uganda og verðum þar eitthvað á þvælingi og skellum okkur svo yfir landamærin til Rúanda í leit að fjallagórillum. Við erum bæði orðin mjög spennt fyrir þeirri ferð! Svo áður en við fljúgum aftur heim getur verið að ég trítli með hóp upp á Kilimanjaro. Verð að muna að taka með auka batterí í myndavélina mína ef ég geri það. Það var frekar glatað að vera batteríslaus þarna uppi síðast!

Viltu segja eitthvað? (1)

 

Loksins gott kaffi í vinnunni

25. November 2007

Það hefur verið alveg bilað að gera í vinnunni, svo ekki sé meira sagt. Það er langt síðan ég hef verið svona upptekinn í vinnunni, en þetta hefur bara verið mjög gaman og spennandi svo ekki hægt að kvarta undan því. Bestu fréttirnar úr vinnunni eru samt að Kaffitár opnaði hjá okkur. Já, það er meira að segja orðið styttra fyrir mig að fara á Kaffitár en að fara upp á kaffistofuna! Held það gerist ekki betra (nema reyndar fyrir buddu greyið, veit ekki alveg hvernig henni reiðir af við svona lagað).

Kaffitár í Lágmúla 9

En svona talandi um kaffi, Ragga (er þarna í miðjunni á myndinni) sendi mér link um daginn, mæli með þessu fyrir kaffiáhugafólk, Sex and coffee.

Viltu segja eitthvað?

 

 
 
 

Myndirnar okkar

Laura
IMG_0987
Embla að smakka ugali í fyrsta skipti
Ãreyttir ferðalangar
Af Eyjafjallajökli
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur