Espressotegundir - Coffe Republic

Framhliðin á Coffee Republic, South Molton Street
South Molton Street er lítil hliðargata frá Oxford Street í London og þar stendur fyrsta kaffihúsið sem Coffee Republic opnaði. Miðað við örtröðina sem ríkir á Oxford er gatan mjög róleg enda göngugata og hið besta afdrep til að setjast niður og slappa af.
Þetta er frekar lítill staður, eins og reyndar flestir Coffee Republic staðirnir, og yfirleitt mjög afslöppuð stemming á þessum stað. Sætin eru reyndar fremur óþægileg þar sem það eru mest megnis háir barstólar sem standa við langt mjótt borð úti við gluggann en það er svosem mjög algengt á þessum High Street
kaffihúsum.
Allir þessir þekktari kaffidrykkir eins og Latte, Cappuchino, Machiato og Americano fást ásamt góðu úrvali af samlokum, kökum og súkkulaði. Þar sem mitt kaffiþamb er nú nær engöngu bundið við Espresso, einfaldan eða tvöfaldan, þá get ég nú ekki tjáð mig um annað en það sem er á kaffiseðlinum hjá þeim, en hef þó eftir öruggum heimildum að það sé töluverður stuðningur í Latteinum þeirra. Hvað Espressóinn varðar hefur stöðugleikinn hjá þeim ekki verið nógu mikill. Það er oft ansi misjafnt kaffið eftir því hver fer höndum um vélina (reyndar er það líka misjafnt milli staða, Coffee Republic á Heathrow er t.d. lakasti staðurinn þeirra, mjög sjaldan sem kaffið er virkilega gott, en það gæti svo sem verið eitthvað með vatnið að gera). Svo kom tímabil þar sem kaffið var bara alls ekki að virka, mér til mikils ama. Svo komst ég reynar að því þegar ég las bókina sem Sahar og Bobby Hashemi skrifuðu (systkynin sem stofnuðu Coffee Republic) að það kom upp tími þar sem stjórnin vildi reyna að gera blönduna ódýrari á kostnað gæðanna. Það var um svipað leyti svo það er líklega skýringin.
Coffee Republic á South Molton Streen er einnig einn af fáu stöðunum hjá þeim sem er reyklaus og er því í sérstöku uppáhaldi hjá mér og minn uppáhalds Coffee Republic staður held ég bara.








