Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Monmouth Coffee Company

Nafn:
Monmouth Coffee Company
 
Hvar:
London
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
 
 
Hvenær:
29. nóvember 2004
 
Umsögn:
Þetta er með skemmtilegustu kaffihúsum sem ég hef komið á í langan tíma. Kaffihúsið sjálft er bakatil í kaffiversluninni þeirra og þarf maður því að ganga í gegnum hana svipað og var hjá Te og Kaffi áður en nýja kaffihúsið þeirra opnaði á Laugaveginum. Kaffihúsinu sjálfu svipar til kráa í bíómyndum sem eiga að gerast í Englandi á tímum Shakespears, allt mjög þröngt og gamalt. Það eru sæti fyrir um 20 manns og eru sætin básar þar sem um 6 geta setið við hvert borð. Bekkir og borð í þessum básum eru úr mjög gömlu og slitnu timbri, eik að ég held. Kaffivélin og uppþvottavélin standa svo í einu horninu og snúa út að gestunum þannig að þegar verið er að búa til kaffi snýr baristan baki í þá sem sitja. Þetta er því allt mjög heimilislegt og afslappað. Bæði kaffihúsið og verslunin eru með mjög krönsí granóla yfirbragði, þ.e. fólk sem endurnýtir, kaupir umhverfisvænar vörur sem eru merktar sanngjörn viðskipti og berst fyrir mannréttindum. Voða góður andi hjá þeim og að sjálfsögðu reyklaust. Kaffið er mestmegnis lífrænt og fengið með sanngjörnum viðskiptum (fair trade) sem er náttúrulega bara hið besta mál. Það má svo finna kaffið frá Monmouth brennslunni í mörgum af heilsubúðum London sem og á mörkuðum víða í bænum.
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 4 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Elín og Borgar
Hringuð rófa
Ljón í Ishasha, Uganda
Lítið barn í Masaia þorpi
Monitor eðla á termítahól
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur