Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - The Tea & Coffee Plant


Hluti af afgreiðsluborðinu
 
Nafn:
The Tea & Coffee Plant
 
Hvar:
London
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
EMC 
 
Hvenær:
3. febrúar 2005
 
Umsögn:
The Tea and Coffee Plant kaffihúsið á miðri Portabello Road götunni er frekar lýsandi fyrir andann sem fylgir þessari götu. Fyrirtækið er rekið af Nýsjálendingum og gengur alfarið út á lífrænt ræktað kaffi og Fair Traid viðskipti. Starfsmennirnir eru allir frekar skrautlegir og líta frekar út fyrir að vera af götunni en kaffibarþjónar. Það er ágætis úrval af kaffi og tei og eitthvað af öðrum kaffitengdum vörum eins og mokkakönnum, sírópum og meira að segja potti til að laga grískt kaffi. Mikið af artí auglýsingum eins og gengur og gerist á svona hippalegum stöðum og einnig eitthvað af tímaritum fyrir gesti að glugga í (eru t.d. með National Geographic). Kaffihúsið sjálft er frekar kalt; ber, steinsteypt gólf, háir barstólar og því ekki hægt að segja að það sé neitt sérstaklega kósí. Manni finnst maður frekar vera á kaffistofu í verksmiðju en á kaffihúsi í miðri London. Þrátt fyrir það er mjög skemmtilegur andi þarna og starfsfólkið virðist vita eitt og annað um kaffi sem er allt of sjaldan hægt að segja með kaffihús í London. En þó er eitt atriði ekki á hreinu, góð hreinsun eftir hvert skot. Það eina sem þeir gera er að berja pökkinn úr og smella svo bara nýju kaffi í, alveg án þess að þrífa neitt meira, hvorki portafillerinn né hausinn á kaffivélinni. Það kaffi sem situr enn eftir (bæði í körfunni og kaffivélinni) fer því með í næsta bolla og getur alveg skemmt fyrir bragðinu, gert skotið mun beiskara, jafnvel funky (ímyndið ykkur táfýlusokka). Stærsti mínusinn hjá þeim er þó að þeir eru að blanda robustabaunum út í sumar kaffiblöndurnar sínar og er það ástæðan fyrir því að þeir fara ekki hærra en 3 í einkunn. Þó ég sé allur fyrir reyklaust kaffihús, Fair Traid viðskipti og lífrænt ræktað kaffi þá er notkun á robustabaunum nær ófyrirgefanlegt í mínum augum.
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 3.5 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Embla á leið til Nairobi
Horft yfir vatnið og milljónir af flamengo fuglum
Best að skoða málið vel
Uppstilling
If horses could talk.....
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur