Espressotegundir - Progreso
Nafn:
Progreso
Hvar:
London
Reyklaus:
Já
Eigið kaffi:
Já
Kaffivél:
Elektra
Hvenær:
11. febrúar 2005
Umsögn:
Þetta kaffihús er alveg toppurinn á Fair Traid viðskiptum í kaffiiðnaði. Það er að hluta í eigu kaffibændanna sem framleiða kaffið sem boðið er upp á, hluta í eigu fjárfesta og hluta í eigu Oxfam. Oxfam eru bresk góðgerðarsamtök sem eins og áður sagði eiga hlut í kaffihúsinu og sjá jafnframt um reksturinn.
Þetta er mjög vingjarnlegt kaffihús, mjög bjart og líflegt og litavalið gæti alveg átt heima í Playmo húsi. Það hefur töluvert verið lagt í hönnunina á öllu saman og vel tekist til. Bekkirnir við borðin eru líka bókahillur og það er alveg töluvert magn af bókum (mest barnabókum samt). Bækurnar eru nú án efa frá
Oxfam Booksen það eru búðir sem Oxfam rekur og selja notaðar bækur. Innréttingarnar eru frekar látlausar en stílhreinar. Bollarnir eru mjög skemmtilegir og þeir fyrstu sem ég hef fengið á kaffihúsi sem eru ekki með haldi. Þeir eru meira eins og kínverskir tebollar í laginu og með plaströnd svo enginn brenni sig á að halda á þeim. Kaffið kom líka mjög á óvart og rann vel niður. Ég á örugglega eftir að koma þangað oft í framtíðinni.
Einkunn:








