Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - The Other Side Cosmic Cafe


Afgreiðsluborðið
 
Nafn:
The Other Side Cosmic Cafe
 
Hvar:
Boston
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
Nei
 
Kaffivél:
Faema 
 
Hvenær:
15. maí 2005
 
Umsögn:

Ég held að þetta kaffihús geti á engan hátt talist hefðbundið kaffihús, allavega ekki á evrópskan mælikvarða. Evrópubúar eru vanir að tengja jazz, bóhema, bókmenntir og oftar en ekki tóbak við kaffihús og kaffihúsamenningu. Hér eru það hjólabrettagaurar og alternative rokkarar sem ráða ferðinni, tónlistinni og útlitinu. Það er svo sem ekki óeðlilegt að þetta sé með miklum háskólabrag þar sem töluverður fjöldi háskóla eru þarna við þröskuldinn, t.d. MIT og Harvard skólarir. Þetta er ekki bara kaffihús því þarna er að finna nokkuð gott úrval annarra veitinga, bæði í föstu formi sem og í formi bjórs (10 mismunandi tegundir á krana og eitthvað í flösku) og annarra drykkja eins og lífrænna djúsa.

Þó hann sé ekki eins og maður á að venjast er þetta skemmtilegur staður og sá sem sá um kaffivélina virtist alveg vita hvað hann var að gera. Hann var líka sá eini af staffinu sem átti eitthvað við vélina svo ég geri ráð fyrir að hinir hafi ekki kunnað með þetta apparat að fara. Því miður náði ég samt ekki að fylgjast nógu vel með honum svo ég náði ekki að sjá hversu vel hann þreif milli skota, hvaða tími var á þeim og slíkt. Staðurinn er þó ekki kósí eða huggulegur staður sem maður fer á til að spjalla. Meira í ætt við pönkaða útgáfu af Hard Rock (meira Limp Bizkit og Linkin Park en Bítlarnir og Presley) en venjulegt rólegt kaffihús. En kaffið sem ég fékk þarna var það besta sem ég fékk í Boston og nágrenni, og í raun bara mjög gott kaffi. Staður sem ég myndir örugglega fara oft á ef ég væri hér í einhvern tíma.

 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 3.5 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Ef ekkert annað er að borða, borðar maður tærnar
Alda og Svali
More horses at Bollastaðir
Steinn og Máni í Sheldrick
Meiri markaðsmyndir
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur