Espressotegundir - Burgil Coffee

Kaffibarþjónn á Burgil Coffee að útbúa kaffi
Lítill krönsí
staður í austur London með bara örfáum sætum. Eru eingöngu með arabica baunir eins og góðu kaffihúsi sæmir, þeir taka það sérstaklega fram að robusta og aðrar annars flokks baunir séu ekki notaðar því lífið sé einfaldlega of stutt fyrir vont kaffi. Kaffið er allt ethically sourced
(sanngjarnir viðskiptahættir) og faretraid
kaffi sem þeir brenna sjálfir vikulega í litlum skömmtum. Þetta er sætur staður en mætti aðeins laga til í óreiðunni á bak við afgreiðsluborðið. Verst hvað hann er lagt í burtu frá okkur, myndi fara oft þangað ef hann væri nær.








