Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Zoka Coffee Roaster

Nafn:
Zoka Coffee Roaster
 
Hvar:
Akasaka - Tokyo
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
La Marzocco 
 
Hvenær:
2. janúar 2007
 
Umsögn:
Þegar við Sigrún vorum í Tokyo varð ég að sjálfsögðu að þefa uppi einhver kaffihús. Ég leitaði töluvert og fann að lokum þetta, Zoka. Þetta er upprunalega keðja frá Seattle í Bandaríkjunum sem er búin að opna í Tokyo. Þrátt fyrir smá tungumálaörðuleika þá gat ég pantað mér kaffi og með því án mikilla vandkvæða. Þegar þeir heyrðu að ég var útlendingur var reyndar kallað í þann sem var á vakt og kunni mestu útlenskuna. Kom mér svolítið á óvart hvað afgreiðslufólkið var slappt í ensku miðað við hvað það var allt ungt og þetta jú amerísk keðja. En hvað um það, tungumálakunnátta starfsfólks skiptir ekki öllu máli. Kaffihúsið var mjög hlýlegt og opið og mikið framboð á með 'í m.a. grænar skonsur (skonsur með grænu tei) sem voru alveg ágætar. Þetta var mjög snyrtilegt kaffihús og greinilegt að Japanir eru mun vanari að taka til eftir sig á kaffihúsi en Íslendingar eða Bretar.
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 4 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Górillur í  Virunga fjöllunum, Rwanda
Séð yfir 'barinn'
Gnýir (Blue Wildabeast)
Litli sæti
Konur í Uaso kvennaþorpinu, Samburu
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur