Espressotegundir - Emmerys

Framhliðin á Emmerys, Kaupmannahöfn
Nafn:
Emmerys
Hvar:
Kaupmannahöfn
Reyklaus:
Já
Eigið kaffi:
Já
Kaffivél:
LaFaimac
Hvenær:
22. febrúar 2004
Umsögn:
Emmerys staðirnir eru mjög danskir hvað útlitið varðar. Allt mjög einfalt, hrátt og stílhreint. Ef Bodum hefði opnað kaffihús þá væri það eflaust svona. Þetta er kaffihús, kaffiverslun, bakarí og gúrmey búð. Þeir eru með eigin kaffibrennslu, eigið te, baka sitt bakkelsi og bjóða upp á olíur, vín og svo sá ég líka að það var hægt að kaupa músli hjá þeim. Allt mjög girnilegt og staðurinn flottur á sinn hátt þó hann teljist nú ekki hlýlegur.
Það eru samt nokkur atriði sem þeir þurfa að laga hjá sér til að geta talist alvuru kaffihús í mínum bókum. Það fyrsta er að vera með sérþjálfaðar baristur, ekki bara píuna úr bakaríinu sem afgreiðir kaffi í hjáverkum. Það er ekki nóg að vera með gott hráefni (kaffibaunirnar), vanhæft starfsfólk getur alveg eyðilagt það allt saman!!! Það sem ég hef fyrir mér í því er að þegar ég pantaði minn tvöfalda espresso spurði stúlkan hvort ég vildi Kenya eða Celebes (en þeir eru samt með alveg sér Espresso blöndu sem er meira að segja mjög góð). Svo var í annað skipti sem önnur dama var að búa til latte og ætlaði að setja Kenya kaffi í það en samstarfsmaður leiðrétti. Auðvitað þarf nýtt starfsfólk að læra og það tekur tíma, en þetta fannst mér samt vera undirstöðuatriði sem ættu að vera kennd á fyrsta degi.
Annað atriðið sem þeir þyrftu að laga að mínu mati er að nota ekki frauðplastbolla þegar kaffið er drukkið á staðnum. Kaffi nýtur sín ekki mjög vel í slíkum bollum. Mér finnst alltaf að það sé góður mælikvarði á gæði kaffihússins hvernig það ber fram kaffið, atriði sem þessi Emmerys staður klikkaði alveg á (hef reyndar farið á annan Emmerys í Árhúsum þar sem þeir notuðu postulín).
Að lokum finnst mér að staður sem auglýsir sig sem kaffihús með úrvalskaffi (Speciality coffee) verði að bjóða upp á a.m.k. eina koffínlausa blöndu því það eru jú margir sem vilja njóta kaffis en þola illa koffín.
Einkunn:








