Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Kaffitár


Séð yfir afgreiðsluborðið í Kringlunni
 
Nafn:
Kaffitár
 
Hvar:
Kringlan
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
Ekki vitað 
 
Hvenær:
24. ágúst 2004
 
Umsögn:

Það var hjá Sonnju Grant á gamla Kaffitári í Kringlunni þar sem ég smakkaði minn fyrsta Espresso. Það má því segja að Kaffitár hafi komið mér á bragðið og sé búið að vera í sérstöku uppáhaldi hjá mér síðan. Meðan ég var að vinna fyrir mbl.is var ég svo fastagestur hjá þeim á nýja staðnum í Kringlunni. Ég og afi hittumst nær alla morgna, hann með einfaldan og ég tvöfaldan, og ræddum um tölvur, heimspeki og allt þar á milli.

Eins og á öðrum kaffihúsum Kaffitárs er þekking starfsfólksins á kaffi og kaffidrykkjum mikil. Það er greinilegt að nýtt starfsfólk fer í gegnum mikinn skóla þegar það hefur störf og Kaffitár virðist leggja mikinn metnað í að vera með fyrsta flokks baristur.

Þar sem staðsetningin í Kringlunni er mjög opin er ekki mikið næði og stundum töluvert skvaldur. Ef mikið er að gera er þetta ekki staður sem ég get setið lengi á og haft það notalegt, eftir einn kaffibolla er ég farinn að ókyrrast. Það fer samt mikið eftir því hvar setið er, undir stiganum er t.d. mun rólegra en fyrir framan Hagkaup. Staðurinn sjálfur er eins hlýlegur held ég og best verður á kosið miðað við staðsetningu. Þar sem þetta er kaffiverslun líka er oft gaman að skoða vöruúrvalið, kaffi, kaffikönnur og fylgihluti.

Þó staðsetningin sé kannski ekki sú ákjósanlegasta fyrir kaffihús hefur tekist að gera það besta úr plássinu og niðurstaðan er ágætis afdrep í annars erilsömu umhverfi.

 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 3 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Bakpokinn klár
IMG_0079-2
Japanskan
Hestakona
P8220029
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur