Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Kaffitár


Kaffitár Bankastræti
 
Nafn:
Kaffitár
 
Hvar:
Bankastræti 8
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
VFA Magestic 
 
Hvenær:
24. ágúst 2004
 
Umsögn:
Kaffitár í Bankastræti hefur að mínu mati allt sem gott kaffihús þarf, góða þjónustu, gott kaffi, notalegt umhverfi og yfirleitt ágætis tónlist og fínt úrval af meðlæti. Það er passlega lítið og vegna smæðar er ekki mikið skvaldur né hávaði (nema á háannatíma, t.d. morgnana). Húsnæðið sjálft er kósí og svolítið þröngt þegar margt er um manninn án þess þó að vera óþægilegt að mínu mati. Það er því gaman að sitja þar og fylgjast með fólki því eins og góðu kaffihúsi sæmir er viðskiptahópurinn breiður og margvíslegur. Nú svo er líka hægt að sitja við gluggann og fylgjast með fólkinu í Bankastrætinu. Kaffitár er annað af þeim tveimur íslensku fyrirtækjum sem eru fyrst og fremst að bjóða upp á gæðakaffi og það er kaffið em er í aðalhlutverki hjá þeim en ekki matur eða áfengi. Það er líka ákveðinn gæðastimpill þegar kaffihús leggja mikið upp úr hvernig drykkirnir eru bornir fram og Kaffitár gerir það, m.a. með Latte Art og í alvuru kaffibollum. Eitt er það þó sem ég hef ekki verið alveg nógu ánægður með, en það er hversu misjafn espressóinn var á tímabili. Fyrir nokkrum árum fannst mér mun stöðugra kaffið, maður gat gengið að gæðunum vísum ef svo má að orði komast. Undanfarið hefur mér fundist bera á því að bollarnir eru misgóðir, frá því að vera mjög góðir í að vera súrir og bitrir. Á tímabili var það orðið þannig að ég hætti að koma, fannst espressóinn oftar mislukkaður en ekki. Það virðist þó að þau hafi áttað sig á þessu því mér finnst gæðin aftur farin að komast í fyrra horf og ég því farinn að venja komur mínar aftur. Það er alltaf notalegt að setjast þarna inn, kíkja í blöðin, fylgjast með fólki og ræða málin yfir góðum bolla. Það er því óhætt að segja að kaffihús Kaffitárs í Bankastræti sé búið að vera uppáhalds kaffihúsið mitt í Reykjavík síðustu árin. Eitt mætti laga þó en það er ískrið í stólfótunum (alger óþarfi að hafa gestina á nálum og með gæsahúð eins og Sigrún mín er í hvert skipti sem einhver hreyfir stól).
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 4 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

og það var borðað
Sunset at Hveravellir
disney21
p9210056
IMG_0063-2
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur