Espressotegundir - Sólon
Nafn:
Sólon
Hvar:
Bankastræti
Reyklaus:
Nei
Eigið kaffi:
Nei
Kaffivél:
Nuevo Simonelli
Hvenær:
28. ágúst 2004
Umsögn:
Sólon, allavega í þeirri mynd sem hann er í dag, er flottur staður. Þetta er meira Bistro en svona hefðbundið kaffihús og því ekki sama stemmning og á kaffihúsi. Það eru oft skemmtilegar myndlistasýningar í gangi og svo alls konar uppákomur á efri hæðinni líka svo staðurinn sem slíkur er lifandi og skemmtilegur.
Útlitið er allt mjög stílhreint og
sleekog greinilegt að það hefur verið mikið spáð í það, liti, litasamsetningar og annað slíkt. Staðurinn myndi sóma sér vel í Wallpaper eða öðrum álíka tímaritum um hönnun og útlit. Vegna þess hvað staðurinn er stór og hátt til lofts verður oft ansi mikið skvaldur þarna inni. Þetta er samt sem áður mjög skemmtilegur staður ef maður er stemmdur fyrir slíkt. Sólon er fyrst og fremst Bistro og kaffið er því ekki aðalatriði hjá þeim. Það er því maturinn sem er þeirra helsta vara og ekkert nema gott um það að segja, enda er maturinn hjá þeim mjög góður!
Einkunn:








