Espressotegundir - Te & Kaffi
Nafn:
Te & Kaffi
Hvar:
Laugavegur 24
Reyklaus:
Já
Eigið kaffi:
Já
Kaffivél:
Nuevo Simonelli
Hvenær:
29. júlí 2004
Umsögn:
Kaffihúsið og verslunin Te & Kaffi er nýbúið að opna nýtt og glæsilegt kaffihús við Laugaveginn, bara ská á móti gamla staðnum á Laugaveginum (kaffibúðin er þar ennþá á nr. 27). Ásamt því að opna þennan nýja stað komu þeir með nýja hönnun á allar pakkningar, nýtt merki og nýtt leirtau, allt mjög stílhreint og flott. Staðurinn sjálfur er mjög flottur en þó verður mjög mikið skvaldur ef eitthvað er af fólki og væri því ekki vitlaust hjá þeim að athuga með að setja hljóðdeyfandi efni í loftið þar sem það er frekar mikið bergmál þarna inni.
Öll framreiðsla á kaffidrykkjun er eins og best verður á kosið og greinilegt að Te & Kaffi leggur mikið upp úr því að þjálfa starfsfólkið sitt. Það kemur því ekki á óvart að Íslandsmeistari kaffibarþjóna 2004 kom einmitt frá Te & Kaffi, en Te & Kaffi og Kaffitár hafa nokkurn veginn verið áskrifendur að flestum titlum á þessu mótum í gegnum árin.
Þó staðurinn sjálfur sé stórt skref fram á við frá fyrra Te & Kaffi kaffihúsinu þá er eitt sem ég sé mjög mikið eftir frá gamla staðnum. Meðan kaffihúsið var baka til í kaffiversluninni var hægt að fá að velja milli kaffitegunda og þar sem þau eru með nokkrar blöndur fyrir espresso hafði maður því val um hvaða blöndu maður vildi. Þetta hefur því miður ekki náð að komast yfir götuna sem er alveg synd því það var ein af skrautfjöðrum þessa kaffihúss. Ég verð því að viðurkenna að ég er ekki eins tíður gestur hjá þeim og ég var.
Ég er samt mjög ánægður með að þetta er reyklaust staður eins og gamli staðurinn svo ég er nú ekkert hættur að koma, kem bara ekki eins oft.
Einkunn:








