Espressotegundir - Te & Kaffi

Afgreiðsluborðið
Nafn:
Te & Kaffi
Hvar:
Smáralind
Reyklaus:
Já
Eigið kaffi:
Já
Kaffivél:
Nuevo Simonelli
Hvenær:
8. september 2004
Umsögn:
Te & Kaffi opnuðu kaffihús í Smáralindinni þegar hún var fyrst opnuð. Svæðið var því að öllum líkindum hannað með það fyrir augum að þar yrði kaffihús en sú hönnun hefur ekki tekist alveg nógu vel að mínu mati.
Svæðinu er skipt í tvo hluta, afgreiðsluborðið og því sem því fylgir og svo svæði með stólum og borðum fyrir gesti. Þar sem þetta er nú allt frekar opið hefur verið sett tjald yfir þetta allt saman, eflaust til að forðast að gestir séu grýttir af unglingum og skrýtnu fólki uppi á efri hæðinni en líklegast líka til að reyna að loka svæðið aðeins af. Þetta er svipuð hugmynd og er í gangi hjá Kaffitári í Kringlunni en því miður er hún ekki eins vel heppnuð hér. Mér hefur alltaf fundist þetta svæði frekar þrúgað vegna tjaldsins, frekar óþægilegt að sitja undir því. Þegar ég var þar áðan þá var tjaldið ekki og það var til mikilla bóta fyrir staðinn, lyfti alveg yfir honum. Vonum að tjaldið komi bara ekkert aftur.
Afgreiðsluborðið og sú aðstaða er einnig mjög köld og frekar fráhrindandi, eins og að vera kominn í eitthvað iðnaðareldhús að standa þar fyrir framan (geri reyndar ráð fyrir að það sé ágætt að vinna í þessu plássi, stórt og gott). Sökum þess hve kalt þetta er þá nær sætaplássið aldrei að njóta sín þrátt fyrir harðviðargólf og gegnheil tréborð. Þar sem afgreiðsluborðið er einn stór stálklumpur og allt annað grátt, að undanskildu trénu, þá er þetta mjög lit- og líflaust svæði og virkar mjög stofnanalegt á mig. Það mætti alveg skella inn smá litum svona til að lífga upp á þetta. Það mætti t.d. skipta gráa áklæðinu á sófunum (sem virkar alltaf skítugt þó það sé það eflaust ekki) út fyrir einhverja liti.
Þar sem þetta er nú hluti af verslunarmiðstöð er ekki hjá því komist að tónlistin sem er spiluð er sú sama og í öllu húsinu. Það er því oft hræðileg liftutónlist spiluð sem á alls ekki heima á kaffihúsi, hentar þó vel í þennan stofnanafíling sem er í gangi.
En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Ástæðan fyrir því að ég fer á þetta kaffihús er svo sem ekki til að horfa á innréttingarnar eða hafa það kósý (það er mjög erfitt í verslunarmiðstöðvum yfir höfuð) heldur er það kaffið sem er í boði. Það er sem betur fer mjög gott í flestum tilfellum. Eftir að Te & Kaffi opnaði nýja staðinn á Laugavegi hefur öllu leirtaui verið skipt út fyrir sérmerkta bolla og undirskálar. Mér finnst það alltaf traustvekjandi þegar kaffihús hafa farið út í að vera með sérmerkt leirtau. Mér finnst það sýna að kaffihúsinu sé annt um hvernig drykkirnir eru bornir fram sem mér þykir mjög áríðandi að sé vel gert.
En svona í heildina litið er þetta ekki mjög spennandi kaffihús nema þá fyrir kaffið sjálft sem er jú aðalatriðið og í þessu tilviki eina ástæðan fyrir að ég hef farið oftar en einu sinni þangað.
Einkunn:








