Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Espressotegundir - Cafe Brera


Afgreiðsluborðið hjá Cafe Brera, Hammersmith
 
Nafn:
Cafe Brera
 
Hvar:
London
 
Reyklaus:
 
Eigið kaffi:
 
Kaffivél:
Faema E92 
 
Hvenær:
9. oktober 2004
 
Umsögn:
Ný kaffikeðja hefur bæst við kaffimarkaðinn í Bretlandi, Cafe Brera. Þessi keðja sker sig úr að því leytinu til að auk kaffisins og því sem kaffinu tilheyrir bjóða þeir einnig upp á áfengi. Staðurinn sem ég fór á var í Hammersmith og var sá staður reyklaus en það á víst því miður ekki við um þá alla. Innréttingarnar eru mjög retró, allt mjög beint og slétt og því mikill bístró fílingur yfir öllu. Logoið þeirra er rautt og það var mjög áberandi litur á staðnum sjálfum, þetta minnti því svolítið á Segafredos svona fljótt á litið. Vegna þess hvað þetta er allt beint og slétt og mikið um stóra auða fleti er þetta fínn staður til að koma á í hádeginu, fá sér í svanginn og svo gott kaffi á eftir. Þetta er, af sömu ástæðu, ekki staður til að koma á með vinum og hafa það náðugt yfir góðum bolla, of kaldur og þessi afgerandi rauði litur of aggressívur. Ég geri nú samt ráð fyrir að þetta sé vinsæll staður eftir vinnu, breska efri-millistéttin virðist vera voðalega hrifin af akkúrat þessari hönnun þegar kemur að börum. Kannski til að reyna að hefja sig yfir pöpulinn sem fer á venjulegu bresku krárnar. Kaffið sjálft kom mér verulega á óvart og ég á því örugglega eftir að fara aftur á þessa staði. En það sem getur líka hafa spilað inn í er að það var verið að þjálfa nýja afgreiðsludömu (vil ekki kalla hana baristu strax) og var það því meistarinn sem lagaði kaffið fyrir okkur. Hann virtist kunna sitt fag og var ekkert að hika við að fleygja fyrsta bollanum þar sem honum fannst ekki nógu gott crema á honum (og það var rétt, en aldrei hefði maður séð þetta á hinum kaffikeðjunum). En það er nú alveg spurning hvort meistarinn nái að miðla þekkingunni þannig að allir starfsmenn keðjunnar séu jafn hæfir. Það verður bara að koma í ljós seinna.
 
Einkunn:
Einkunn fyrir þetta kaffihús: 4 af 5 mögulegum
 


Til baka


 
 
 

Myndirnar okkar

Einar spjallar við þorpsbúa
Bilaðir gaurar
Hornfellshnípa
P7250083
Fílar í Samburu þjóðgarðinum
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur