Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Nordic Barista Cup

Dagana 28. til 30. október var haldið Norðulandamót kaffibarþjóna hér heima. Kaffitár sá um skipulagningu og lagði til húsnæði fyrir keppnina. Þetta er annað mótið sem haldið er en á síðasta ári var það haldið í Kaupmannahöfn og voru það Norðmenn sem fóru með sigur af hólmi. Kemur svo sem ekki á óvart þar sem heimsmeistari kaffibarþjóna 2004, Tim Wendelboe, var í norska liðinu.

Sænska stuðningsliðið ræður ráðum sínumNorðulandamótið er að mörgu leyti frábrugðið hinum hefðbundnu kaffibarþjónakeppnum eins og t.d. heimsmeistarakeppninni. Í heimsmeistarakeppninni er um einstaklingskeppni að ræða og þar getur hver keppandi skipulagt og æft allt sem hann ætlar að gera áður en á keppnisstað er komið, það er ekkert óvænt sem bíður. Á Norðurlandamótinu eru önnur boðorð sem ríkja. Fyrst ber að nefna að samkvæmt sönnum skandinava sið er um liðakeppni að ræða og skiptir því miklu að góð samvinna sé í liðinu og góður liðsandi, en það er þó ekki það eina. Það eru engar settar reglur sem slíkar fyrir keppninni, hverju landi sem heldur keppnina er frjálst að gera eitthvað nýtt og spennandi. Á síðasta ári stóð keppnin yfir í einn dag og var þá einungis kaffikeppnin sem slík. Þetta árið var um að ræða þriggja daga keppni þar sem keppt var á mörgum sviðum. Keppendur þurfa líka að takast á við hið óvænta. Kvöldið fyrir kaffikeppnina sjálfa fá þeir að vita hvaða hráefni þeir hafa úr að moða daginn eftir og hvert þema keppninnar er. Keppendur fá svo hráefnið í hendurnar um morguninn og hafa þá nokkra klukkutíma til að undirbúa sig og skipuleggja. Þetta gerir keppnina mjög líflega og skemmtilega og var auðséð á keppendum að þeir höfðu mjög gaman af þessu.

Íslenska liðið í miðjum afmælissöngÞað voru vissulega engir aukvisar í landsliði okkar Íslendinga. Liðið var að þessu sinni skipað Hirti Matthíasi Skúlasyni (Kaffitári), Siggu Dóru Halldórsdóttur (Kaffitári), Njáli Björgvinssyni (Te og kaffi) og Ásu Jelenu Petterson (Segafredos). Ragnheiður Gísladóttir (Kaffitári) sá svo um liðsstjórnun.

Keppnin hófst sem fyrr segir fimtudaginn 28. október. Fyrri hluti dagsins fór í kynningar á liðunum, kynningu á kaffi frá styrktaraðilum og almennu spjalli. Eftir hádegið var svo hafist handa við keppnina sjálfa. Þar áttu keppendur að taka til hendinni við ristun og cupping, kaffiblöndun, kaffismökkun og mjólkurfreyðingu. Þessar kaffiblöndur voru svo það sem keppendur notuðu í keppninni fyrir sína drykki og sama gilti um mjólkina sem þeir völdu, það var mjólkin sem það lið notaði í drykkjakeppninni.

Annar dagurinn var svo helgaður mjólk og má geta þess að MS styrkti þann dag. Keppendur og stuðningsmenn liðanna eyddu deginum með mjólkurfræðingum MS og fræddust um sérstöðu íslensku mjólkurinnar og þær mjólkurafurðir sem framleiddar eru hérlendis. Keppnisgreinarnar þann daginn voru mjólkursmökkun, þar sem keppendur fengu þrjú glös af mjólk, tvö glösin innihéldu sömu mjólkurtegunda en eitt ekki. Mjólkurtegundirnar voru nýmjólk, g-mjólk, léttmjólk og rjómi. Keppendurnir áttu, með því að smakka, finna hvert þessara þriggja glasa innihélt ekki sömu mjólkurtegundina og hin tvö. Einnig var komið við í fjósi og keppendur látnir handmjólka kú, freyða mjólkina á staðnum og útbúa Cappuchino sem dómararnir gáfu svo einkunn. Hjörtur okkar var ekki lengi að fylla eina litla könnu enda vanur sveitamaður. Finnarnir áttu í miklum erfiðleikum með þetta og náðu ekki að mjólka kúna.

Dómararnir kynntirÁ laugardeginum var svo aftur haldið í kaffibrennslu Kaffitárs og nú var komið að aðalhlutanum, keppninni um kaffidrykkina. Kokkur úr landsliði okkar íslendinga, Alfreð Alfreðsson, var fenginn til að velja saman í körfuna sem keppendur þurftu að vinna úr og þar kenndi margra grasa. Meðal þess sem í körfuna fór var Frískamín, skyr, vanillubúðingur, negull, fjallagrös, saffran, kanill, súkkulaði, Pipp, barnamatur, DaVinci síróp, rjómi, mangó, mangochutney, kínverskar perur og svo sitthvað fleira að ógleymdu kaffinu og mjólkinni. Eins og gefur að skilja var innihaldið ekki mjög auðvelt í samsetningu en þær kvaðir voru settar að allt úr körfunni þurfti að nota á einn eða annan hátt. Á sama tíma og liðin fengu að vita hvaða innihald þau hefðu til að vinna úr fengu þau líka að vita hvaða þema þurfti að vinna með. Það voru 2 að þessu sinni og mjög ólík. Annað var að framreiða drykki í barnaafmæli sem halda ætti á kaffihúsinu. Keppendur átti að ímynda sér að dómararnir væru nýbakaðar mæður sem væru að smakka kaffi í fyrsta sinn eftir barnsburð og væru því fullar eftirvæntingar eftir eðalkaffi. Einnig þurfti að útbúa eitthvað fyrir börnin sem voru með í för. Hitt þemað var að útbúa kaffidrykki fyrir konungsborna. Drottningin af Grænlandi og drottningin af Færeyjum voru gestir kaffihússins og þurfti að útbúa drykki við hæfi. Keppendur fengu einnig að vita að þessar ólofuðu drottningar væru til í allt og báðar miklar kaffikonur, svo miklar að sú færeyska hefði meira að segja verið að vinna á laun sem kaffibarþjónn í Færeyjum.

Liðin hófust handa við undirbúning klukkan 8.00 að morgni laugardagsins. Þá höfðu liðin fjögur tíma til að prófa sig áfram og ákveða hvað skyldi gera við hráefnið. Ég geri ekki ráð fyrir að hin liðin hafi getað gert sér í hugarlund á föstudagskvöldinu þegar karfan var kynnt, hvernig Frískamín, fjallagrös eða skyr bragðaðist og hvernig hægt væri að nýta það í kaffidrykki. Það var verulega gaman að sjá hversu mikill munur var á hráefnisnotkun liðanna, sem og hvernig þau báru fram drykkina og unnu almennt úr þessum verkefnum. Það sem dómararnir gáfu stig fyrir var samvinna, framreiðsla, notkun hráefnis og svo að sjálfsögðu bragðgæði drykkjanna. Liðin þurftu því að lýsa hverjum drykk, hvað var í honum, hverju ætti að búast við af drykknum og öðru sem þau töldu mikilvægt að dómararnir vissu. Liðin þurftu einnig að leggja upp úr útliti drykkjanna og fengu að velja sér hvernig glös þau notuðu fyrir hvern drykk. Í heild voru þetta átta mismunandi drykkir sem liðin útbjuggu, fjögur fyrir hvert verkefni. Hvern þessara átta drykkja þurfti að útbúa í sex glös, eitt glas fyrir hvern af dómurunum fimm og svo eitt fyrir liðið sjálft til að smakka á.

Noregur í miðri keppniEftir að liðsstjórarnir drógu um keppnisröðunina riðu Norðmenn á vaðið og hófu keppnina. Það getur ekki verið öfundsvert að þurfa að vera fyrst og hafa ekki séð hvernig hin liðin útfærðu sína drykki. Þau stóðu sig engu að síður með prýði og báru fram hvern glæsilega drykkinn á fætur öðrum. Þau buðu meðal annars drottningunum upp á þeyttan vanillubúðing með súkkulaðisósu og með því báru þau fram lítil staup af espresso með ögn af vanillubúðingi og ofan á hann settu þau hrásykur sem þau bræddu svo með litlum brennara. Þau komu sér líka mjög auðveldlega frá Frískamíninu og barnamatnum, bjuggu til vítamínbættan hristing fyrir afmælisbörnin úr því.

Önnum kafnir FinnarEftir Norðmönnunum komu Finnarnir. Þeir tóku það fram í byrjun að þeir væru frekar nýir í þessu og væru fyrst og fremst að vera með. Þó það hafi verið greinilegt að þau voru ekki jafn vön hinum þátttakendunum var mjög gaman að fylgjast með þeim og sjá hversu frumleg og óhrædd þau voru með sína drykki. Þau veigruðu sér til dæmis ekkert við að bjóða drottningunum upp á drykk sem þau kölluðu Crazy Bitch og viðurkenndu að sá drykkur samanstæði af því hráefni sem þau höfðu ekki getað notað í hina drykkina (þ.e. vanillubúðingi, kryddum, Frískamíni og öðru blandað í espresso og borið fram í staupi).

Ása Jelena peppar upp stemmninguna meðan Sigga Dóra ber fram drykkinaÁ eftir Finnunum var röðin komin að okkar fólki. Íslenska liðið var það eina sem gaf öllum sínum drykkjum nöfn sem mér fannst vera skemmtilegt töts. Þau stóðu sig mjög vel og var bæði gaman að fylgjast með þeim sem og hlusta á hvað þau höfðu um drykkina að segja. Ekki spillti fyrir að til að lifa sig inn í verkefnin tóku þau lagið fyrir afmælisbarnið og sungu afmælissönginn. Það má því segja að þau hafi gert meira úr stemmingunni sem fylgdi þessum tveimur þemum en bæði Norðmenn og Finnarnir höfðu gert. Meðal þess sem íslendingarnir buðu gestum sínum upp á var sætur kaffidrykkur, borinn fram í Martini glösum þar sem brún glasanna hafði verið skreytt með salti og sykri. Með þessu var svo boðið upp á kryddaðan mango og skyr eftirrétt.

Svíar tilbúnir með leikssýninguSvíarnir tóku við af Íslendingunum og má segja að þeir hafi sett upp lítið leikrit fyrir áhorfendur. Áhorfendur fengu að fylgjast með því sem fram fór í eldhúsi kaffihússins, kjaradeilum starfsmanna og öðru sem kemur upp á stöðum þar sem mikið er í húfi. Svíarnir voru með dygga stuðningsmenn og fór því ekkert á milli mála hverjir voru að keppa í það skiptið. Það sem þeir buðu upp á var meðal annars fjallagrasate fyrir drottningarnar og ávaxtakaffi borið fram í hvítvínsglasi skreytt með jarðaberi.

Danirnir þjóna drottningunum til borðsÞegar Svíarnir höfðu lokið keppni var komið að síðustu keppendunum, Dönum. Danska liðið var eina liðið sem tók tíma í að kynna hvern liðsmann. Þau blönduðu saman bæði grunnþáttum eins og ristretto og cappuchino við frumlega drykki úr því hráefni sem skaffað var. Þau báru til að mynda fram espresso skot í undirskál með dropa af vanillubúðing fljótandi í miðjunni. Öll framsetning drykkjanna var eins og sönn dönsk hönnun, stílhrein og fáguð. Eins og flestir vita eru Danir mikið selskapsfólk og stóð því ekki á þeim heldur með að taka lagið fyrir afmælisbarnið. Fyrir mitt leyti sem áhorfandi var danska liðið sigurvegarinn í drykkjakeppninni og verð ég því að viðurkenna að það kom mér ekki á óvart að þeir báru sigur úr býtum.

Þegar Danirnir höfðu lokið keppni var gert hlé á keppninni en svo haldið áfram á Hótel Borg um kvöldið. Þar fór fram lokaþáttur keppninnar sem kom öllum í opna skjöldu. Þessi lokaþáttur átti ekkert skylt við kaffi heldur var hér um að ræða karokí keppni. Norska liðið vann þann hluta og þá var aðeins eftir að tilkynna hver sóð uppi sem sigurvegari. Eitthvað hafði karókíkeppnin flækt málin en að lokum var tilkynnt að Danir höfðu haft yfirhöndina þegar á heildina var litið. Það var þó mjótt á mununum því íslenska liðið var einungis sjö og hálfu stigi undir því danska.

Það er óhætt að segja að keppnin öll hafi verið mjög skemmtileg og vel heppnuð og svo sannarlega með skandínavísku yfirbragði. Einn dómaranna, sem var fyrir hönd DaVinci sírópsframleiðandans í Bandaríkjunum, hafði sérstaklega orð á því hvað það væri afslappað andrúmsloft yfir öllu og hvað öll liðin virtust skemmta sér vel. Henni fannst virkilega gaman að því hversu mikil tilbreyting þetta væri frá hinu spennta andrúmslofti sem einkenndi meðal annars heimsmeistarakeppnina.

Kaffitár fær mikið klapp á bakið fyrir vel unnin störf og allan aðbúnað að keppninni sem og þá vinnu sem hefur farið í að halda þessa keppni. Nú er bara að sjá hvort Norðmenn sem halda keppnina á næsta ári geti gert betur!


11. Okt 2004

Noregur hefur nú kynnt sitt lið og heimsmeistarinn Tim Wendelboe er ekki meðal keppenda. Hann verður reyndar á svæðinu sem liðstjóri norska liðsins.


23. Sep 2004

Dagana 28. til 30. október fer fram Norðurlandamót kaffibarþjóna (Nordic Barista Cup). Þetta er í annað skipti sem slíkt mót er haldið og í ár verður það haldið hér á landi. Kaffitár mun hýsa keppnina í kaffibrennslunni þeirra í Njarðvík svo það ætti ekki að væsa um mannskapinn. Keppendur frá Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð koma hingað og svo verður landslið okkar Íslendinga að sjálfsögðu með. Það má búast við mjög spennandi keppni þar sem Norðurlandabúar fóru mikinn á síðasta heimsmeistaramóti kaffibarþjóna. Þar var Norðmaðurinn Tim Wendelboe í fyrsta sæti, Daninn Klaus Thomsen í 3. og Njáll Björgvinsson í því fjórða. Bæði Njáll og Klaus munu keppa á NBC en ég hef ekki séð liðsskipann Norðmanna svo ég veit ekki hvort Tim er í norska liðinu í þessari keppni.

Dagskráin fyrir keppnina er tilbúin og er í grófum dráttum eftirfarandi:

Fimmtudagurinn 28. október
09:30 Keppnin sett
10:00 Kaffisamband Mexico halda yrirlestur. (Þeir eru meðal styrktaraðila keppninnar)
11:30 Hádegismatur í kaffibrennslu Kaffitárs
12:30 Cupping með Addý
19:00 Heimsálfubrúin skoðuð
20:00 Kvöldverður á Duus í Keflavík

Föstudagurinn 29. október – Mjólkurdagur, haldið í Mjólkursamsölunni
09:30 Mjólkurfræðingar heldur fyrirlestur
10:30 Hvert lið með kynningu á sambandi kaffi og mjólkur
11:00 Hádegisverður í boði MS
12:00 Kynnisferð fyrir liðin, Gullni hringurinn.
18:00 Kvöldverður á Hafinu bláa, Stokkseyri

Laugardagurinn 30. október – Keppnin sjálf
09:00 Undirbúningur liðanna
10:00 Slökun í Bláa lóninu
12:00 Undirbúningi lýkur
13:00 Keppnin hefst
Liðin munu fá verkefnin við komuna til landsins
Hvert lið hefur 30 mínútur til að skila sínu verkefni
Dómar byggja á: Samvinnu liðsins/liðsanda, smökkun og frumleika
Það er einn sigurvegari, aðrir eru í öðru sæti
16:30 Keppni lýkur
19:15 NBC gleði – kampavín jarðaber og súkkulaði (en hvað með kaffi….)
20:00 Verðlaunaafhending, kvöldverður og skemmtiatriði
23:00 Farið út á lífið

Kíkið á heimasíðu Nordic Barista Cup fyrir nánari upplýsingar: nordicbaristacup.com


 
 
 

Myndirnar okkar


Fatal error: Call to a member function show_random() on a non-object in /home/eddakvae/urbanmania.com/wp-content/themes/urbanmania/footer.php on line 16