Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Áhugavert video um netvæðngu í Rwanda

8. December 2008

þetta video um helgina og fannst það áhugavert. Þetta er um netvæðingu í Rwanda og hvernig stjórnvöld þar eru að veðja á Netið til að koma efnahagsmálum landsins á réttan kjöl. Ekki lítið verk fyrir höndum en ég vona að þetta gangi eftir hjá þeim!

Viltu segja eitthvað?

Ég er búinn að komast að þessu með hundinn…

6. December 2008

Reyndar ekki alveg hundinn, en allavega með blogg letina í mér, ég held ég sé búinn að átta mig á hvers vegna hún er tilkomin. Þetta er allt Facebook og Twitter að kenna! Ég er hættur að nenna að blogga um svona random hluti sem eg finn á netinu því ég twitta um það og set það á Facebook statusinn hjá mér (reyndar er hann tengdur við Twitter svo það sem ég twitta fer á Facebook). Ég verð greinilega að taka mig á og fyrsta skrefið er víst að viðurkenna að ég eigi við vandamál að stríða, næsta skrefið er að gera eitthvað í málunum svo hér eru nokkur atriði.

Flott kollaEins og t.d. þessi líka flotta síða sem ég fann þar sem maður getur mátað hárkollur eins og þessa sem ég er með á myndinni. Þetta er japönsk síða, hairtry.jp, sem ég rakst á. Maður sendir inn mynd af sér og úr henni er gerð hreyfimynd sem blikkar augunum og fylgist með þegar maður hreyfir músina. Þetta er alveg eins og ég hef séð fyrir mér ljósmyndirnar í Harry Potter. En allavega, ég fann þessa síðu og Twittaði um það en bloggaði ekki.

Svo fann ég líka síðu með myndum af æðislegum 70′s sænskum böndum, gæti trúað að þetta væru svona gleði sveitir / brúðkaupsbönd. Hvern langar ekki að líkjast strákunum í Tonix?

En þetta fór bara á twitter en aldrei á bloggið (fyrr en nú).

Töffararnir í Tonix

Það sama var uppi á teningnum, twitt en ekkert blogg, þegar ég var moving my boogie body til að koma mér í skuggalegt form með Judi Sheppard Missett og Jazzercice vinum hennar. Hún tekur morgunleikfimi Jónínu Ben í nefið!

Viltu segja eitthvað?

Myndir úr göngum

22. November 2008
Næstum Hveravellir Hvannadalshnúkur Eyjafjallajökull Hekla

Er búinn að bæta nokkrum myndum inn á flickr úr hinum og þessum göngum sem ég hef farið á þessu ári, svona ef einhver hefur áhuga. Þetta eru myndir frá Heklu, Eyjafjallajökli, Hvannadalshnúki og svo tilraunar til að komast á Hveravelli sem enduðu bara í bústað í Grímsnesi (en skemmtilegt samt!).

Viltu segja eitthvað?

Sigrún – One-Pot-Wonder-Woman

22. November 2008

Verð bara að monta mig af betri helmingnum! Fyrir nokkrum vikum sá ég auglýsta uppskriftasamkeppni á einum útivistarvef sem ég les gjarnan. Ég var ekki lengi að smella þessu á Sigrúnu, vitandi að hún lumaði á nokkrum góðum fjallauppskriftum, það var jú það sem þessi keppni gekk út á, uppskriftir sem er hægt að gera á fjöllum og bara með einn pott! Mikið rétt, Sigrún lumaði á ekki bara einum aðalrétti heldur forrétti, aðalrétti og eftirrétti sem var hægt að gera allt í sama pottinum (reyndar ekki samtímis). Sigrún snaraði þessu öllu yfir á ensku og sendi inn. Hún spáði svo ekki meira í það en fékk svo póst síðustu helgi þar sem vinningshafarnir voru kynntir. Af 100 sem komust í undanúrslit voru 2 sem unnu, Sigrún og einhver annar gaur. Ég vissi alltaf að útilegumaturinn hjá henni (sem og annar matur) væri vinnings, en nú hef ég það staðfest!

Fyrir þá sem vilja nánari upplýsingar um úrslitin bendi ég á: www.alpkit.com/comps/one-pot-wonders-result.

Viltu segja eitthvað? (1)

Kominn til byggða

17. November 2008
Alli í snjónum og sólinni

Gönguhópurinn var með þau háleitu markmið að fara á Hveravelli um síðustu helgi og ekki bara það heldur slá upp sushi veislu líka. Við lögðum af stað í ágætu veðri, 12 manns + 1 hundur á 3 jeppum. Allt gekk rosa vel þar til við komum upp fyrir Gullfoss þegar ég fór aðeins of langt út af veginum þegar við mættum jeppa á fullri ferð. Ég skellti mér út í kant til að gefa honum séns á að komast en sat svo fastur þar. Við létum það ekki á okkur fá, mér var kippt upp og við héldum áfram þrátt fyrir versnandi veður. Eftir um hálftíma í viðbót var svo ákveðið að snúa við og fara bara í sumarbústað.

Okkur tókst svo eftir töluvert vesen (nokkrar festur, smá ýting og mokstur) að komast aftur niður á malbik og inn á Geysi. Þar var sveitin skönnuð fyrir gistipláss og var skilyrði að það væri heitur pottur á staðnum (fólk búið að láta sig dreyma um pottinn á Hveravöllum). Það fundust svo bústaðir á Minni Borg þar sem var slegið upp mega sushi veislu undir stjórn Súsí Wonder (Sigrúnu). Af þeim 12 sem voru í hópnum voru 10 sem borðuðu sushi og skiptu með sér 680 bitum! Það voru einhverjir 30 eftir af þessum 680 en þeim voru gerð góð skil um morguninn, ekki einn biti eftir þegar við fórum heim. Reyndar voru margar rúllurnar ekki svo stórar svo þetta voru um 500-550 venjulegir bitar. Sama er…einn dó sushidauða í sófanum vegna ofáts.

mmmm langar í meira sushi….

Viltu segja eitthvað?

Er hann enn að tala um kaffi?

25. October 2008

Það er ekki annað hægt að segja en að ég hljóti að teljast til lélegustu bloggara allra tíma. Hef ekki bloggað í 2 mánuði!! (var að taka eftir því að síðasta færsla var 25. ágúst og nú er 25. okt.)

Hvað um það, ákvað að reyna að sparka smá lífi í þessa annars dauðu síðu hjá mér. Það hafa eflaust margir komið sér af stað aftur í að blogga um kreppuna en ég ætla ekkert að blanda mér í þá umræðu. Held það sé ekkert sem ég gæti sagt um ástandið sem hefur ekki verið sagt áður. Ekki það að ég hafi eitthvað merkilegra að tala um en ástandið í þjóðfélaginu, en mér finnst bara skemmtilegra að blaðra aðeins um kaffi en efnahagsmál. Held líka að þessar fáu hræður sem villast inn á þessa síðu séu ekki að koma hingað til að fá meira krepputal eða hvað mér finnst um stjórnina eða seðlabankastjóra.

Logo Square Mile Coffee RoastersEn hvað um það. Sigrún þurfti að skreppa til Bretlands um daginn til að halda námskeið fyrir fyrirtæki þar. Þar sem það var búið að borga far fyrir hana þá ákváðum við að ég myndi koma út á eftir henni og við myndum eyða helgi í Lonodn. London var alveg frábær að vanda og við Sigrún verðum alltaf ákveðnari í að flytja aftur þangað. Þar sem þetta var eftir að krónan byrjaði að falla (en vikunni áður en bankarnir byrjuðu að falla) vorum við nú ekki í verslunarferð. Við eyddum alveg hellings tíma á kaffihúsinu hennar Maríu vinkonu okkar á 4Market Place. Sátum þar og spjölluðum við hana milli þess sem hún hljóp um eins og Hindu guð með 8 handleggi. Ég ákvað líka að skella mér (og dró Sigrúnu með) í smá mekka ferð að skoða nýja kaffibrennslu í London, Square Mile Coffee Roasters. Þessi kaffibrennsla er í eigu James Hoffman og Anette Moldvaer, hann var heimsmeistari kaffibarþjóna 2007 og hún heimsmeistari kaffismakkara sama ár. Ég kynntist þeim aðeins þegar þau dæmdu með mér á Íslandsmeistarmóti Kaffibarþjóna á síðasta ári. Við vorum alveg heillengi að spjalla við Anette og smakka kaffið hjá henni og ég sá að sama hvað fólk heldur því fram að ég sé kaffinörri, þá á ég ekki séns í þau tvö!

Ég og Anette að skoða baunirnar
Ég og Anette að skoða kaffibaunir

Það er ekki spurning að þetta er besta kaffi sem ég hef fengið í Bretlandi. Því miður eru þau ekki búin að koma upp kaffihúsi en ég mæli eindregið með því, fyrir þá sem vilja smakka gott kaffi, að panta kaffi úr vefversluninni þeirra! Ef einhver er að leita að kaffihúsi sem selur kaffið þeirra, þá veit ég að það er einn kaffivagn á Whitecross Street markaðinum sem selur kaffið frá þeim. Hún Jónína sem vinnur hjá Te og Kaffi hefur stundum unnið á þessum kaffivagni.

Af kaffinu hérna heima þá er það helst að frétta að Kaffismiðja Íslands hefur opnað á Kárastíg 1 (gamla Yggdrasils húsinu). En það eru Sonja og Imma sem voru hjá Kaffitári sem eru á bak við Kaffismiðjuna. Þær eru að koma sér upp kaffibrennslu og svo er kaffihús í húsnæðinu líka. Brennsluofninn er úti á gólfi í kaffihúsinu, alveg svakalega bleikur og flottur brennsluofn og það verður gaman að geta kíkt í kaffi og fylgst með kaffibrennslu í leiðinni.

Læt þetta duga í bili, þarf að halda áfram að vinna…

Viltu segja eitthvað?

Frá dýri til disks

25. August 2008

Síðustu ár hef ég, frekar ómeðvitað verið að færast nær og nær því­ að vera grænmetisæta. Vissulega hefur það töuverð áhrif að Sigrún er grænmetisæta en hún er ekki að reyna að hafa nein áhrif á hvað ég borða þannig séð. Það eru margir sem tala um að grænmeti sé ekki matur heldur meðlæti en þeir hafa þá lí­klega aldrei smakkað almennilega grænmetisrétti. Ég get alveg viðurkennt að mér finnast t.d. soðnar gulrætur alls ekki matur, reyndar ekki heldur meðlæti, svona ef út í­ það er farið, en í mínum bókum jafnast góður grænmetisréttur hjá Sigrúnu alveg á við gott kjöt.
En ég held að núna eigi ég alveg eftir að skipta eftir að hafa horft á Farm to fridge, video um meðferð á dýrum í­ matar­ framleiðslu. Alls ekki fyrir viðkvæma!

Ég veit að þetta er ekki eins slæmt hér heima, en þetta vekur mann samt til umhugsunar á hvernig ástandið hér heima er í­ raun og veru? Ég vann á kúabúi eitt sumar og það var nú ekki hægt að kvarta undan meðferðinni á beljunum þar, það var hugsað vel um þær og kallað í­ lækninn ef eitthvað var. Auðvitað vil ég trúa því­ að það sé eins með önnur mjólkurbú á landinu. En ég hef lí­ka séð inn í­ kjúklingabú og það var alls ekki um hamingjusamar hænur að ræða þar. Hvernig er svo ástandið á sví­nabúum eða þar sem nautgripir eru ræktaðir fyrir kjötið. Ég man t.d. eftir auglýsingu frá Argentí­nu steikhúsi þar sem þeir voru mjög stoltir af því­ að nautakjötið þeirra kæmi af nautum sem hefðu hreyft sig alveg óskaplega lí­tið um ævina. Þýddi það þá að kálfarnir höfðu svo lí­tið pláss að þeir gátu sig hvergi hreyft og komust heldur ekki út undir bert loft?

Hugsum aðeins málið.

Viltu segja eitthvað?

Nýi afrika.is loksins kominn út á netið

2. August 2008

Þá er ég loksins búinn að opna nýjan vef Afríku Ævintýraferða, afrika.is. Við Sigrún erum búin að vera að dunda í þessu síðustu mánuði, svona á kvöldin og um helgar með hjálp Borgars og Elínar að sjálfsögðu. Ég sá um forritun en Sigrún um efnistökin, texta og myndir (hún tók persónulega hverja einustu mynd sem sést á vefnum).

Stærsti gallinn við að vinna í þessum vef er að mann langar alltaf svo hrikalega mikið að fara aftur út þegar maður er að vinna í myndunum (eða bara skoða þær eins og ég datt stundum í).

Vefurinn er nú ekki alveg fullbúinn, það eru nokkur atriði sem við viljum bæta og höldum því ótrauð áfram þó við séum búin að opna hann.

Viltu segja eitthvað? (1)

Nýtt ríkisfang óskast!

17. June 2008

Ég vissi að Íslendingar sem þjóð eru upp til hópa plebbar og aftarlega á merinni með ansi margt en, í einfeldni minni, hélt ég virkilega að það væru takmörk! Við tölum alltaf (og í sömu andrá sannfærum okkur sjálf um það) eins og við séum svo veraldarvön og stöndum svo framarlega á öllum sviðum, teljum okkur mest best og frábærust! Í reynd erum við bara með svakalega minnimáttarkennd og reynum allt sem við getum til að fela það að við erum afdala sveitatúttur í lopapeysum. Við gerum grín að nýríkum Rússum, hvað þeir séu nú svona og hinsegin og beri bara enga virðingu fyrir náttúrunni o.fl. Hvernig var nú aftur máltækið með flísina…

Sem heild eru Íslendingar sífellt að tala um hvað við eigum nú fallega náttúru og ef maður vissi ekki betur þá mætti skilja lang flesta Íslendinga þannig að það væri bara enginn staður í heiminum sem væri nálægt því jafn fallegur og það sem meðal Jóninn sér út um stofugluggann hjá sér, hvað þá einhverja af perlum landsins. En hvað gera íslendingar við þessa blessuðu náttúru sína, smella eins og einu uppistöðulóni hér og einu þar og svo drita álverum út um allt eins og skreytingu á köku!

Sömu Íslendingar fara til útlanda og fussa og sveia yfir menguninni sem er í stórborgunum, eitthvað annað en á Íslandi sko! Ég man samt oft eftir því að horfa yfir Reykjavík úr Hnoðraholtinu fyrir mörgum árum og sjá þetta svakalega gula mengunarský sem hvíldi yfir borginni, ekki alveg eins tært loft og maður hefði haldið miðað við hvað kórinn syngur.

Eins hneykslast Íslendingar á þessum bananalýðveldum úti í heimi þar sem ríkir svo mikil spilling og ég veit ekki hvað. Ég tel mig nú ekki vera neinn stjórnmálafræðing, en mér þykir samt eitthvað rotið við það að hleypa manni aftur á þing sem hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir brot sem hann framdi meðan hann var á þingi. Jú, fólki verða á mistök og sumir eiga skilið að fá annað tækifæri, en kannski ekki alveg á þingi, mér finnst það aðeins of nálægt því að verðlauna kauða verkið. (Tek það samt fram að það er ekki einsdæmi á Íslandi að fábjánar komist á þing, mýmörg dæmi um það út um allan heim.)

Og að blessuðum ísbirninum, sem er svo sem ástæðan fyrir þessu þvaðri í mér. Íslendingar plöffuðu niður þann fyrsta, sá seinni hefur enn séns á að þetta fari allt vel. En það sem lét mig endanlega missa allt álit á þessari þjóð var að sjá í Fréttablaðinu í dag að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er eitthvað að spá í að taka inn nýjar dýrategundir. Við erum ekki að tala um að taka inn nýja húsdýrategund, nei það væri nú ekki nógu fínt! Þeir eru að velta fyrir sér ísbjörnum, mörgæsum og jafnvel og Síberíutígrum! Ég gjörsamlega fyrirlít dýragarða og alla þá staði sem halda villtum dýrum í búrum. Ég rétt næ að gúddera Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í þeirri mynd sem hann er núna, þetta eru jú flest húsdýr og því ekki mikill munur á að vera með dýrin þarna niðri í Laugardal eða á bóndabæ einhvers staðar. Geiturnar, grísirnir og félagar þeirra sem eru þarna eru jú húsdýr en ekki vilt dýr sem eiga heima úti í náttúrunni langt í burtu frá manninum. En að láta sér detta í hug að flytja inn villt dýr og hafa þau í búrum eða á lokuðum svæðum er alveg fyrir neðan allar hellur. Það tilheyrir tímum þar sem barnaþrælkun tíðkaðist og þrælar þóttu sjálfsagður hlutur. Mér liggur forvitni á að vita afstöðu forráðamanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins til þeirra mála?

Íslendingar halda að útlendingar sjái okkur sem einhver náttúrubörn í svakalega fallegri paradís. Því miður erum við búin að byggja of margar virkjanir og veiða of marga hvali til að splundra þeirri ímynd. Og ef við förum svo að koma okkur upp dýragarði með fágætum dýrum í útrýmingarhættu þá held ég að við verðum endanlega afskrifuð hjá þeim sem þykja eitthvað til náttúru koma, sett á stall með hinum nýríku Rússunum eða Kínverjum sem er sama um allt sem heitir náttúra og bera enga virðingu fyrir einu né neinu.

Ég held líka að ef það kemur Síberíutígrisdýr hingað verði það til þess að þessi varanlegi bjánahrollur sem ég er með verði mér hreinlega ofviða og ég neyðist til að skipta um ríkisborgararétt. Spurning hvort það sé nóg, ætli það sé hægt að afneita mannskepnunni sem heild og fara í tegundaskiptaaðgerð?

Ég tek það samt fram að auðvitað eru ekki allir sem falla undir þessa skilgreiningu, nærtækasta dæmið er t.d. að Novator bauðst til að borga fyrir flutning á birninum, er mest hissa að Björgólfur Thor hafi ekki bara boðist til að skutla honum líka í einkaþotunni ;) Eins hefur mér alltaf þótt Sigríður Tómasdóttir algjör gella. Svo er gaman að sjá að Björk og Sigur Rós eru að gera sitt til að vekja athygli á náttúrumálefnum. Það vantar fleiri svona Íslendinga!

Viltu segja eitthvað?

Bókin tilbúin

9. June 2008

Forsíða bókarinnar

Ein opna bókarinnar

Við Sigrún gáfum Borgari og Elínu bók með myndum úr ferðum sem við höfum farið með þeim eða á þeirra vegum fyrir Afríku Ævintýraferðir. Sigrún bloggaði svo um bókina og eftir það fengum við einhverjar fyrirspurnir um hvort það væri hægt að kaupa svona bók og meira að segja Gestgjafinn fékk eina mynd hjá Sigrúnu til að setja í blaðið til að kynna svona heimatilbúnar bækur. Við ákváðum því að gera smá breytingar á bókinni og gefa öllum kost á að kaupa sér eintak og nú geta því allir sem vilja keypt sér svona bók og látið senda heim. Það er hægt að skoða sýnishorn af bókinni (PDF snið, um 2mb) áður en maður kaupir eintak. Tek það fram að þar sem bókin er prentuð erlendis þá bætist við smá tollur þegar hún kemur, mig minnir að það hafi verið um 900krónur.

Viltu segja eitthvað? (1)

 
 
 

Myndirnar okkar


Fatal error: Call to a member function show_random() on a non-object in /home/eddakvae/urbanmania.com/wp-content/themes/urbanmania/footer.php on line 16