Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Kvedja fra Rwanda

25. February 2008

Bara mjog stutt kvedja fra Rwanda. Ferdin er buin ad vera frabaer og gorillurnar sem vid vorum ad skoda nuna i morgun voru alveg tvimaelalaust toppurinn! Tetta eru hreint ut sagt magnadar skepnur og otrulegt hvad madur kemst nalaegt teim!! Vid kiktum adeins yfir myndirnar okkar eftir ad vid komum til baka og tad eru nokkrar mjog flottar (taer sem Sigrun tok). Tetta kemur allt a netid tegar vid komum heim.

Viltu segja eitthvað? (1)

Sorgardagur og smökkunarkeppni

17. February 2008

Já, það var sko sorgardagur á mínu heimili á föstudaginn, harði diskurinn í lappanum mínum gaf upp öndina! Ég hef ekki haft tíma til að kaupa nýjan og setja vélina upp aftur til að átta mig betur á hversu slæmt þetta er. Ég á svona helstu gögn á bakköppi á netinu svo ég er ekkert svo stressaður með þetta, en samt eru slatti af stórum skjölum sem ég hef ekki verið að bakka upp, t.d. grunn skrárnar fyrir bæklingana sem ég geri fyrir Afríkuferðirnar. En það er allt eitthvað sem hægt er að gera aftur og er líka oftast betra þegar maður gerir upp á nýtt. Ég er svona að spá hvort þetta hafi verið sjálfsmorðstilraun hjá vélinni því ég er búinn að vera að renna hýru auga til nýrrar vélar svo mín hefur kannski orðið abbó. Því miður hef ég ekki alveg efni á nýrri vél akkúrat núna, en svona til öryggis, þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á framlög í tækjasjóð Jóhannesar :oops: Ég hugsa að ég verði að láta mér nægja að kaupa nýjan harðan disk og setja vélina upp aftur. Get víst ekki kvartað mikið, hún hefur reynst mér vel og ég er ánægður með hana þó mann langi alltaf í nýja vél.

En að öðrum málum, skellti mér í gær og fylgdist með undankeppninni í kaffismökkun. Mótið fór fram í höfuðstöðvum Kaffitárs í Njarðvíkum og það var mikið fjör og stemming að vanda. Árni (brennslumeistarinn hjá Te og Kaffi) varði titilinn sem íslandsmeistari í kaffismökkun en hann varð einmitt í 2. sæti í heimsmeistarakeppninni á síðasta ári, svo hann veit eitt og annað um þetta. Setti hér fyrir neðan mynd af honum og Tuma, kaffibarþjóni hjá Kaffitári þegar þeir voru að keppa í undankeppninni.

Árni og Tumi að keppa í kaffismökkun

Því miður þurfti ég að fara áður en úrslitin voru því ég átti eftir að vinna alveg helling. Var að skila af mér smá leiðbeiningum fyrir vinnuna um hvað ég hef verið að vinna í svo þau geti séð um mín mál meðan við Sigrún förum til Afríku. Núna er sunnudagur og það þýðir að ekki á morgun heldur hinn leggjum við af stað til Uganda!!!! Hlakka ekkert smá til, verður svooooooo gott að komast aðeins út í sól og hita og skipta um umhverfi. Allt of langt síðan við fórum út síðast. Eftir górilluferðina í Uganda og Rúanda ætlum við að stoppa eina nótt í Mombasa og fara þaðan yfir til Tansaníu og skoða Usambara fjöllin og keyra þaðan upp til Moshi sem er rétt við rætur Kilimanjaro. Hvorki ég né Sigrún höfum komið í Usambara fjöllin áður svo þetta verður mjög skemmtileg og spennandi ferð, ekki það allar ferðirnar eru spennandi á sinn hátt. Þó maður hafi komið á staðina áður þá sér maður samt alltaf eitthvað nýtt og lærir eitthvað nýtt.

Viltu segja eitthvað?

Það voru fleiri sem föttuðu djókið!

3. February 2008

Ég, Sigrún Pam og Tim rétt fyrir sýningu á fimmtudeginum!

Jæja, þá eru Caroline og Tim farin aftur til London, ég keyrði þau út á völl í gærmorgun. Það verður gaman að heyra hvort þau hafi verið sett á Saga Class eins og Axel, einn af flugþjónum Icelandair, sem var á sýningunni, var búinn að lofa. Ég held við Sigrún getum bara verið mjög ánægð með hvernig til tókst með þetta allt saman. Það var standandi lófatak í lok sýningarinnar í gærkvöldi sem hlýtur að segja eitthvað og líka hversu ánægð Caroline og Tim voru með viðtökurnar. Þetta var í fyrsta skipti sem hún kemur fram í landi þar sem enska er ekki móðurmál áhorfenda svo hún vissi ekki alveg við hverju hún átti að búast. Það hlýtur líka að vera ágætis vitnisburður þegar þau bæði hafa orð á því að það væri gaman að koma aftur hingað og þau vilji að við vinnum með þeim í því og líka í öðrum verkefnum með þeim. Við Sigrún fórum því í bólið í gær þreytt en mjög ánægð með þetta allt saman og það var greinilegt að þessi húmor var ekki bara eitthvað sem okkur fannst fyndinn heldur virtust allir sem mættu líka vera að fatta djókið!

Viltu segja eitthvað?

Pam Ann í kvöld!!

31. January 2008

Já, þá er þetta bara brostið á! Fór og náði í þau (Pam og aðstoðarmann) í gær út á völl. Sigrún ætlaði að sækja þau en var því miður lasin. Við kíktum svo niður í Tjarnarbíó og fengum okkur svo að borða á Næstu grösum.

Bendi bara á að nú fer hver að verða síðastu að kaupa miða, bara einhverjir örfáir eftir á fyrri sýninguna og ekki svo mikið eftir á seinni.

Það kom smá viðtal í Morgunblaðinu og mbl.is í dag og svo verður hún í Kastljósi í kvöld líka.

Viltu segja eitthvað?

Tvær í einu!

29. January 2008

Já er það ekki það sem hvern karlmann dreymir um, að vera með tveimur konum í einu, bara trekant, samloka og hvaða önnur nöfn eru notuð yfir svona lagað! Ég fékk að prófa það áðan, er ekki að skrökva! Sigrún meira að segja horfði á…

OK, OK, OK, það var ekki svooooollllleeeiiiiððððððiiiissss samloka heldur voru þetta tvær konur að klippa mig í einu. Ég skrapp í klippingu sem er nú ekki frásögu færandi, nema að sú sem klippir mig venjulega var upptekin að klippa Sigrúnu svo það var önnur sem klippti mig. Þær voru svo eitthvað að spá í hvernig þetta ætti að vera og þegar hún var búin að klippa Sigrúnu þá voru þær tvær, sitt hvoru megin, að klippa hausinn á mér. Ég held ég hafi bara aldrei verið í eins efficient klippingu sko, fannst ég alveg vera celeb. Mæli alveg með þessu.

Viltu segja eitthvað?

Espresso í útileguna

21. January 2008

Ég veit að ég er ekki næstum því nógu duglegur að blogga og því greip ég tækifærið þegar ég sá þetta. Ekki spurning maður þarf að taka svona með sér í göngurnar og sumarbústaðinn og ég tala nú ekki um á Kilimanjaro!

Viltu segja eitthvað? (3)

Pam Ann á leiðinni

13. January 2008

Pam Ann á leiðinniEftir að hafa séð Pam Ann þrisvar í London ákváðum við að það væri tími til kominn að Íslendingar fengju að njóta hennar. Við Sigrún erum sem sagt að flytja inn stand-up snillinginn Pam Ann. Hún kemur nú fram á Íslandi í fyrsta skipti og er upplögð í skammdeginu. Tvær sýningar verða haldnar, 31. janúar og 1. febrúar kl.20 í Tjarnarbíói. Endilega sendið á sem allra, allra flesta! Miðasala er hafin á midi.is.

Hlakka til að sjá ykkur!

Viltu segja eitthvað?

Jólin afstaðin, næst er það Rúanda

29. December 2007

Þá eru jólin búin þetta árið og það verður bara að segjast að það var alveg ágæt uppskera þetta árið eins og svo oft áður, fékk t.d. þessa fínu mannbrodda frá Sigrúnu. Verð bara að fara að klöngrast upp á jökul til að vígja þá ;) Við Sigrún höfðum það bara mjög rólegt og vorum 2 heima á aðfangadag. Á Þorláksmessu vorum við með hið árlega Þorláksmessuboð sem tókst alveg ágætlega, komu milli 50 og 60 manns. Sigrún á nú alveg heiðurinn af veitingunum en ég sá um kaffið! Held að flestir hafi bara verið sáttir við kaffið sem þeir fengu og alveg í skýjunum yfir öllum þeim kræsingum sem Sigrún bar á borð. Ég náði reyndar að detta alveg í kaffinördagírinn þegar einn félagi minn kom, álíka kaffinörd. Við vorum m.a. eitthvað að spá í að slá saman og panta hið víðfræga Black Cat kaffi frá Intelligentsia í Bandaríkjunum. Þetta er ein af þessum kaffiblöndum sem maður hefur lesið mikið um en hvorugur hefur fengið að smakka svo við vorum að spá í að bæta úr því. Væri gaman að panta öðruhvoru frá hinum og þessum gourmet kaffibrennslum hingað og þangað um heiminn. Sjáum hvað setur.

Annars er voða lítið á dagskrá næsta mánuðinn nema vinna, borða, sofa. Það verður aðeins meira spennandi lífið hjá okkur í febrúar og mars. Ég geri ráð fyrir að fara á GSMA Mobile World Congress í Barcelona og svo stuttu seinna erum við að fara að skoða górillur í Rúanda. Við förum til Uganda og verðum þar eitthvað á þvælingi og skellum okkur svo yfir landamærin til Rúanda í leit að fjallagórillum. Við erum bæði orðin mjög spennt fyrir þeirri ferð! Svo áður en við fljúgum aftur heim getur verið að ég trítli með hóp upp á Kilimanjaro. Verð að muna að taka með auka batterí í myndavélina mína ef ég geri það. Það var frekar glatað að vera batteríslaus þarna uppi síðast!

Viltu segja eitthvað? (1)

Loksins gott kaffi í vinnunni

25. November 2007

Það hefur verið alveg bilað að gera í vinnunni, svo ekki sé meira sagt. Það er langt síðan ég hef verið svona upptekinn í vinnunni, en þetta hefur bara verið mjög gaman og spennandi svo ekki hægt að kvarta undan því. Bestu fréttirnar úr vinnunni eru samt að Kaffitár opnaði hjá okkur. Já, það er meira að segja orðið styttra fyrir mig að fara á Kaffitár en að fara upp á kaffistofuna! Held það gerist ekki betra (nema reyndar fyrir buddu greyið, veit ekki alveg hvernig henni reiðir af við svona lagað).

Kaffitár í Lágmúla 9

En svona talandi um kaffi, Ragga (er þarna í miðjunni á myndinni) sendi mér link um daginn, mæli með þessu fyrir kaffiáhugafólk, Sex and coffee.

Viltu segja eitthvað?

Myndir frá Tanzaníu og Kenya komnar á flickr

20. October 2007
Darajani matarmarkaðurinn í Stone Town, Zanzibar

Það eru komnar myndir frá síðustu Kenya og Tansaníuferð inn á netið. Myndina hér að ofan tók Sigrún einmitt á Darajani matarmarkaðnum í Stone Town, Zanzibar (gamli bærinn á Zanzibar eyjunni)

Viltu segja eitthvað? (2)

 
 
 

Myndirnar okkar

Ofurlítill og sætur fílskálfur að stelast frá mömmu sinni
Sigrún S, Renate, Claus and Anja
à flugvellinum í Nairobi
Roppongi Hills
Bath
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur