Heim
 
 
 

Afríka Ævintýraferðir

Á ferð og flugi með Afríku Ævintýraferðum

Ljósmyndabók með myndum úr ferðum á vegum Afríku Ævintýraferða Skoða sýnishorn (2mb PDF)

 
 

Kaffi mánaðarins

Nafn: Los Luchandores Pacamora Espresso

Frá: Square Mile

Einkunn fyrir þetta kaffi: 4.5 af 5 mögulegumEinkunn:

Lesa umsögn

 
 

Músík; Megas og Airwaves

20. October 2007
Megas var frábær á tónleikunum

Úfff orðið mjög langt síðan ég bloggaði. Hefur svo sem ekki gerst mikið síðan síðast nema þá að við Sigrun skruppum á Megas og Senuþjófana í Laugardalshöllinni. Þetta voru frábærir tónleikar og ekki spurning um að Megas er einn flottasti tónlistarmaður sem komið hefur fram á skerinu. Senuþjófarnir voru líka alveg frábærir og það var mun kraftmeiri og þéttari spilamennska en ég hafði búist við. Lögin komu vel út og gaman að heyra hvað þeir djömmuðu sum lögin mikið upp, náðu upp frábærri stemningu.
Myndi hér að ofan er frá Völundi Jónssyni, vona að hann taki það ekki illa upp að ég noti hana

Ég hafði ætlað að nýta mér það að fara á Airwaves í ár fyrst ég er nú einu sinni á landinu, hef verið úti síðustu árin og því ekki komist. Ég var samt eitthvað svo seinn á mér og var ekki búinn að kveikja á perunni þegar það var orðið uppselt svo ég eins og svo margir aðrir fékk ekki neitt. En svo var ég svo heppinn í gær að mér áskotnuðust miðar, ekki amalegt það. Smellti mér því út í gær og kíkti á nokkur bönd. Held að Trentamoller hafi verið svona það sem stóð mest uppúr í gær en ég sá reyndar ekki allt sem mig langaði að sjá, festist í biðröðum dauðans. Það skrifast nú reyndar bara á mig, þar sem ég hafði ekki reiknað með miðum þá var ég ekki búinn að skipuleggja neitt og lenti því í þessum biðröðum. Hér er smá video sem ég tók af Trentamoller í gær.

Svo á ég eftir að setjast niður og plana kvöldið í kvöld, eitt og annað sem mig langar að sjá. Þarf því miður að vinna í dag svo ég hef bara kvöldið.

Viltu segja eitthvað?

Kominn heim

30. September 2007

Mikið um að vera á matarmarkaðinum niðri við strönd í Stone Town

Jæja, þá erum við Sigrún komin heim eftir bara mjög vel heppnaða ferð. Við eigum eftir að henda myndunum inn á netið en það verður samt að viðurkennast að við tókum færri myndir í þetta skiptið en venjulega, vorum bæði mjög upptekin við vinnu. Það var mjög gaman á Zanzibar og þó sérstaklega í Stone Town. Sigrún tók þessa mynd hérna fyrir ofan, en myndin er einmitt af matarmarkaði við ströndina í Stone Town, mjög skemmtilegt andrúmsloft þarna á kvöldin. Við gistum á geggjuðu hóteli þar sem er bæði hótel og kaffihús með eigin kaffiræktun, ekki amalegt það. Ég á eftir að skrifa dóma um kaffihúsið og kaffið, kemur vonandi fljótlega.

Viltu segja eitthvað? (1)

Stutt kvedja

20. September 2007

Jaeja, ta er eg buinn ad kvedja hopinn sem eg var med a vegum Baendaferda. Ferdin gekk vel og eg held ad allir hafi veri anaegdir tegar eg skildi vid tau a flugvellinum i Nairobi i gaerkvoldi.

Eg hitti svo Sigrunu nuna i hadeginu, tegar hun kvedur sinn hop og vid forum svo seinnipartinn til Zanzibar. Tad verdur gaman ad koma tangad og sja eitthvad nytt.

Eg aetladi ad setja mynd med tessu en er ekki med retta snuru svo hun verdur ad koma seinna.

Viltu segja eitthvað?

Jæja

5. September 2007
 
Ljón að slappa af

Þá er ég farinn til Kenya. Blogga ef ég mögulega get!

Safari njema= Góða ferð (á swahili) :)

P.s. Sigrún tók þessa mynd í febrúar í Masai Mara.

Viltu segja eitthvað?

Heimsmeistarinn og London

8. August 2007

Þá erum við komin frá London, reyndar komum við á sunnudaginn en ég hef ekki alveg haft tíma í að blogga neitt, búið að vera voða mikið að gera. Byrjum á kaffibbarþjónakeppninni, úrslitin voru eftirfarandi:

  1. James Hoffman frá Bretlandi
  2. Heather Perry frá Bandaríkjunum
  3. Carl Sara frá Nýja Sjálandi
  4. Miyuki Miyamae frá Japan
  5. Anna Kaeppeli frá Sviss
  6. Sylvia Magalhaes frá Brasilíu

Þau sem fengu svo sérstaka viðurkenningu fyrir drykkina í úrslitum voru:

  • Besti espressoinn: Heather Perry, Bandaríkin
  • Besti cappuccinoinn: Miyuki Miyamae, Japan
  • Besti frjálsi drykkurinn: James Hoffmann, Bretland

En það má einnig benda á að Imma fékk sérstaka viðurkenningu sem uppáhalds kaffibarþjónn keppninnar. Það hlýtur að vera svona eins og vinsælasta stúlkan í fegurðarsamkeppnunum!

Þess má geta að á næsta ári verður heimsmeistaramótið haldið í Kaupmannahöfn. Það er ekki spurning um að maður kíkir þangað!

En já, við Sigrún skelltum okkur sem sagt til London yfir verslunarmannahelgina, alltaf svo notalegt eitthvað að koma HEIM til London. Það var alveg ótrúlegt hvað ég rakst á marga bara svona á götunni sem ég þekkti, mun fleiri en þegar ég labba niður Laugaveginn. En við vorum samt ekkert smá heppin með veður, sól og 30°C hiti. Við vorum því mest megnis bara í Hyde Park og í Soho Square garðinum að njóta veðursins með öllum hinum. Veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska í London þetta sumarið og því voru garðarnir alveg stappaðir af fólki en það var samt notalegt.

Viltu segja eitthvað?

Þau sem komust í úrslit…

1. August 2007

Hér eru svo listinn yfir þau sem komust í úrslit:

  • Anna Kaeppeli frá Sviss
  • Sylvia Magalhaes frá Brasilíu
  • Heather Perry frá Bandaríkjunum
  • Carl Sara frá Nýja Sjálandi
  • James Hoffman frá Bretlandi
  • Miyuki Miyamae frá Japan

Ég veit nú bara ekki hvað er að gerast! Að því ég best veit er þetta í fyrsta sinn sem engin norðurlandaþjóð er í úrslitum í keppninni.

Viltu segja eitthvað? (2)

Forkeppnin búin

1. August 2007

Nú er forkeppnin búin og bara verið að bíða eftir að það verði tilkynnt hverjir komust í úrslit. Þeir sem hafa áhuga geta horft á hvernig Immu gekk,

Það verður spennandi að sjá hvort hún komist ekki í úrslit!

Viltu segja eitthvað? (2)

Þá er ballið byrjað

31. July 2007

Nú er bara að senda Immu jákvæða strauma. Heimsmeistaramót kaffibarþjóna er farið af stað og að þessu sinni er keppnin haldin í Tokyo. Í dag (Tokyo er jú nokkrum tímum á undan) kynntu allir keppendur sig og hvaða tól og tæki þeir þyrftu. Þetta stefnir í hörku keppni og verður gaman að fylgjast með, verst að ég gat ekki verið á svæðinu, hefði verið gaman.

Ég smellti hérna með videoi af einu kaffibloggi, http://zacharyzachary.com en þau eru í Tokyo og verða með fréttir af keppninni. Þetta eru keppendurnir í ár, Imma tekur sig vel út (Í videoið vantar reyndar inn Israel, Eþíópíu, Latviu og Slóveníu):

Aðrir vefir sem eru svo líka með umfjöllum:

James Hoffmann (sem er breski meistarinn)
Barista Magazine

Og þó það hafi ekki gerst neitt enþá þá á ég von á að sjá eitthvað fara að gerast hjá Jan (hann er úti með Immu og Sonju) og líka hjá CoffeeGeek.

Viltu segja eitthvað? (1)

Kominn til byggða

30. July 2007

Mér finnst alltaf flott að sjá hvernig reksturinn lestar sig

Þá erum við komin aftur í bæinn eftir annars mjög vel heppnaða hestaferð yfir Kjöl. Mamma var búin að biðja okkur um að koma með í ferð sem hún var beðin um að skipuleggja fyrir 11 Þjóðverja suður Kjöl. Við vorum að sjálfsögðu til í það, orðið töluvert langt síðan við höfðum farið í hestaferð. Í heild vorum við 19 í ferðinni og 69 hross, sæmileg útgerð það. Því miður er hnéð á Sigrúnu ekki í standi til að hún geti farið á bak svo hún og önnur sáu um að elda í mannskapinn, og þvílíkar veislur sem þær göldruðu fram við frumstæðar eldhúsaðstæður! Það er ekki spurning um að það hefur ekki fengist betri matur í hestaferð fyrr né síðar :)

Annars gekk ferðin rosalega vel og þetta var allt mjög vel heppnað. Við fengum líka alveg þvílíka þakkarræðu í lokin frá hópnum, hrósuðu sérstaklega góðum hestum og góðum mat. Svo eru myndirnar líka komnar á netið, það er alveg slatti og í þetta skiptið með enskum texta. Gerðum það fyrir útlendingana sem voru í ferðinni, svo þeir vissu eitthvað um hvað málið snérist!

Viltu segja eitthvað?

Te og kaffi opna aftur

10. July 2007
Verslunin eftir breytingar

Við Sigrún skelltum okkur á Laugaveginn um helgina, þurftum að kíkja í nokkrar búðir. Við vissum líka að Te og kaffi höfðu opnað gömlu-nýju búðina sína svo við ákváðum að kíkja við. Þegar ég segi gömlu-nýju búðina þá er það bara vegna þess að þau eru í raun búin að fara hring. Þau voru með kaffihús og kaffiverslun á Laugavegi 27, tóku svo kaffihúsið út og færðu yfir götuna (númer 24 ef ég man rétt). Svo seldu þau þann rekstur og voru því ekki með neitt kaffihús á Laugaveginum fyrr en þetta opnaði núna í síðustu viku. Sem sagt, komin hring. Hvað um það, búðin nýopnuð eftir mjög vel heppnaðar breytingar, virkar mun bjartari og opnari en áður. Þau eru t.d. búin að færa kaffibarinn fremst í búðina og því mun auðveldara að kippa einum bolla með sér ef maður á leið framhjá. Ekki sakar heldur kaffivélin sem þau eru með er ekki síður fyrir augað, vél frá Victoria Arduino, sérstök afmælisútgáfa í tilefni af 100 ára afmæli Victoria Arduino. Mjög flott vél, sá hana fyrst á skrifstofunni þeirra úti í Hafnarfirði þegar ég hitti hina dómarana fyrir Íslandsmeistaramótið, var svo að pumpa Njál um hvað þau ætluðu að gera við vélina og hann sagði að þau væru að spá í að setja hana þarna (það er líka önnur vél á skrifstofunni hjá þeim sem væri gaman að sjá í notkun á kaffihúsi, mjög flott lever vél, líka frá Victoria Arduino ef ég man rétt).

Elfa mundar mjólkurkönnuna og Victoria Arduino vélin þarna til hliðar

Við kíktum sem sagt við á Te og kaffi og Elfa gerði þennan líka eðal espresso (kaffiflækjan hennar Sigrúnar var líka mjög góð). Elfa var að nota Passero frá þeim en ekki venjulegu húsblönduna, kom mjög vel út. Ég var líka mjög ánægður að sjá að það er hægt að fá espresso í postulíni þarna, mér finnst það stór galli á kaffihúsinu þeirra í Pennanum í Austurstræti að það sé bara hægt að fá í götumáli. Ég mæli með því að kíkja við á Laugaveginum, þó það væri ekki nema til að skoða vélina.

En svona talandi um kaffi, datt inn á frábærar gamlar sjónvarpsauglýsingar fyrir kaffi í dag. Varð að skella þeim með :)

Amma keypti einmitt Maxwell House ;)

Viltu segja eitthvað? (3)

 
 
 

Myndirnar okkar

à kennslustund í Uaso kvennaþorpinu
disney33
Borgr að passa
IMG_0818
Gnýir við sjóndeildarhringinn
 
 
 

Er að hlusta á...

Flytjandi: Hudson Mohawke

Diskur: Polyfolk Dance

Umsögn: Alveg ágæt EP, vel þess virði fyrir þá sem kunna að meta smá tilraunir.

Tóndæmi: Overnight

Eldri plötur